Notendanafn: Netfang:
Lykilorð: Lykilorð endurtekið:
Titill heimasíðu:
 
Atvik
 
"Það er slakur hundur sem getur ekki dillað eigin rófu." "Það er aðeins til einn gáfaðasti hundur í heimi og það eiga allir hann." "Hundar þekkja ótta. Hinn mesti ótti hunda.. er óttinn um það að þú komir ekki aftur þegar þú ferð út án þeirra." "Ef þú bíður fólki í ...
 
Dagfinnur dýralæknir
 
Abyssinian kisur | 22:15
Góða kvöldið gott fólk
ég fór með Brandý í sónar fyrir helgina og hún er því miður gerfiólétt og því verðum við bara að vona það besta að hún verði kettlingafull sem fyrst.
Allavega er þetta það helsta að frétta að sýning kynjakatta verður 13 og 14 Mars oger þegar búið að skrá 97 ketti svo nú er bara drífa sig að skrá kisuna sína á sýninguna og vera með, tala um kisur við kisufólk heila helgi er svo skemmtilegt og fræðandi,nánari upplýsingareru á síðu kynjakatta.
Bless í bili og góða nótt gott fólk.
Meira »
simbi er týndur :( | 17:49
Hann elsku simbi minn er týndur!!
 
Meira »
Jasmín Rós & Birta Nótt | 02:10
Halló kæru vinir Það er komið nýtt útlit á síðuna þeirra. Jasmín Rós ældi í dag, það er meiri ælustandið á henni undafarið, en samt ekkert mikið og þetta var nú bara "góð" æla í dag, ss. ekkert ógeðslegt að þrífa, leit bara út eins og einhver hefði sett kattamat þurrann á gólfið. Smekklegt ég veit, að lýsa þessu hahaha. Þær fengu að fara út í dag en fóru ekki út fyrr en ég Alda fór út og þá vildu þær loksins fá smá frískt loft. Núna er Birta Nótt voða kelin og góð. Jasmín Rós hefur verið undafarið að reyna fara uppá Birtu nokkur skipti, við værum búnar að taka hana úr sambandi ef hún væri ekki svona gömul og okkur finnst það óþarfi, hún er bara búin að vera undafarið skrítin.... rosalega smekklegt blogg haha. Þær fengu nýtt dót um daginn, svona prik með fjöður og þeim finnst það mjög gaman að leika með og svo fjórar litlar mýs og MEIRI lætin þegar þær fengu þær, það var ýtt þeim undir sófa og troðið sér þangað á eftir þeim og klórað í sófann og hlupið fram og til baka, svo mikil læti að Gurrý tók allar mýsnar og faldi þær þangað til seinna, úps. En bæ í bili.
Meira »
Goðheimaræktun | 22:14

Umsögn dómara um frammistöðu og hæfni hunds í veiðiprófi :

1. Í góðum hliðarvind fer Ýmir í framúrskarandi vinnu, nýtir vind og land vel. Standur, fer viljugur fram en sýnir okkur ekki fugl.
( það var hræ af rjúpu ) innskot frá mér
2. Heldur áfram sömu vinnu. Festir stand langt úti sem makker heiðrar, reisir djarft RUS eftirleitar og sækir útlagða bráð.
3. Í meðvindsleit heldur Ýmir áfram framúrskarandi vinnu, finnst á standi, rjúpu léttir þegar leiðandi kemur að RUS eftirleitar.
4. Ýmir nær sér ekki í samfellda vinnu. Fælir upp fugl í tvígang, rólegur. Ýmir hefur sýnt okkur fallega vinnu í dag sem hann nær
ekki að halda út daginn og hlýtur því verðskuldaða 2 einkunn. kritik 5556 444

Þetta var flottur dagur í frábæru veðri, Ýmir var að standa sig mjög vel, og vonandi verður bara framhald á þessu hjá okkur.
Meira »
Depill Hnoðri | 20:41
Núna er ég orðinn sex mánaða gamall og er orðinn ansi stór kisutrákur. Ég fer til dýralæknisins þann 19 febrúar og ég fer í geldingu hjá lækninum og mamma og amma kvíða smá fyrir því að ég fari í þessa aðgerð. Annars gengur vonandi allt vel.
Meira »
Jasmín Rós & Birta Nótt | 00:10
Nýr bakgrunnur. Birta Nótt ældi í nótt en varla neitt, ekkert sem pirraði neinn allavega, nema að hún hafi ælt á nýju úlpuna mína er eini pirringurinn. Það eru myndir að koma inn eftir smástund. Þær fengu að fara út í dag og þeim fannst það æði. Einnig urðu þær eða Jasmín mjög ánægð að fá fisk í kvöld.
Meira »
Askur, Embla, Erró og Skotta | 16:55
Þá er komið að því, hann Erró er eins árs í dag. Hann hlakkar mikið til að fá túnfisk í kvöldmatinn og svo verður fullt af gestum þar  sem það er saumaklúbbur hjá mér í kvöld. Semsagt hann fær bara svaka partý strákurinn. Ég setti inn nokkrar myndir af afmæliskisunni.
Bestu kveðjur til ykkar allra.
Meira »
Abyssinian kisur | 15:19
Góðan dag gott fólk !!
Já nú er eitt ár síðan Erró Eir og Eik fæddust ég vil óska þeim til hamingju með daginn og án efa fá þau öll eitthvað gott að borða í dag :)
Annars er svo sem ekkert að frétta  frá Kolsholtsræktunn annað allavega ekki í bili.
Eigið öll góðan dag og bless í bili :)
Meira »
Goðheimaræktun | 18:13
Tókum sennilega síðustu æfinguna fyrir prófið á laugardaginn, enginn fugl en töluvert um markeringar, ætlaði að æfa hann í sókn eftir uppflug en við látum slag standa.
Meira »
Maine coon | 14:36
Jæja smá fréttir en hér er búið að skrá 3 kisur á marssýninguna hjá Kynjaköttum.  Það eru þau Fjalldrapa Aisa, Fjalldrapa Brandur og Eagle-storm F. Pandora. Sýningin er er dagana 13.og 14. mars og erum við að verða bara dálítið spennt að bíða.
 
Meira »
Goðheimaræktun | 18:25
Hjóluðum 14 km í dag í blíðskaparveðri.
Meira »
Goðheima ræktun | 19:25
Komnar nýjar myndir af litlu systkinunum og stóru systrum :) Það gengur annars allt vel og kettlingarnir stækka og þroskast vel. Midas er nú í fyrsta sinn orðinn þyngri en systir sín, hann er um 690 gr en Myrrha um 677 gr við síðustu vigtun. Systkinin eru bæði mjög dugleg að borða og skófla í sig þurrfóðri á milli þess sem þau fá sér sopa hjá mömmu. Suri er önnum kafin við að siða prakkarana til :) En þau eru kelin og yndisleg og elska að fá klapp og klór og láta leika við sig.
Við erum búin að ákveða að sýna stóru systurnar Gaiu og Doris á mars sýningunni. Þar verða þær í fyrsta sinn í fullorðinsflokki og verður spennandi að sjá hvernig þeim gengur :)
 
New pictures of the little siblings and the big sisters :) Everything is going good and the kittens are growing and developing well. Midas is now for the first time weighing more than his sister, he weighs about 690 gr and Myrrha about 677 gr at the last weigh in. The siblings are both big eaters and showel up the dry food while getting sips from mom in between. Suri is very busy disciplining the little rascals :) But they are cuddly and lovely and love to be petted and played with.
We have decided to show the big sisters Gaia and Doris at the March show. There they will be shown as adults for the first time and it will be exciting to see how they do :)
 
Meira »
Goðheimaræktun | 21:22
Æfðum í Sandgerði í dag, byrjaði reyndar ekki vel týndi Ými í 20 mínútur, hann hafði stungið sér undir girðingu og ekki komist til baka. Hann var að fara full opið og stórt í dag, en þegar við vorum búnir með þrjár fuglavinnur fór hann styttra og þétti slögin. Fuglavinnurnar voru mjög góðar hjá honum, lét hann einungis reisa einu sinni með útlagðri bráð. Reisingin er orðin örlítið tregari hjá honum sem er í lagi þar sem mér þótti hann full djarfur í henni, nú reisir hann með tíu til fimmtán metra hlaupi og stoppar og bíður eftir mér og reisir þá aftur ef fuglinn hefur ekki farið í loftið. Staðan á Ými er þannig að hraðinn er fínn, leitar breidd og leitarmynstur er frekar stórt og opið, fuglavinnan mjög góð, einbeitning í að finna fugl og vinna úr því er mjög góð, þarf reyndar aðeins að stýra honum í eftirleit.
Meira »
Kjarna Týra Cavalierskvísa ♥ | 13:02
Búnar að skrá okkur á sýninguna í Febrúar, bíðum spenntar þangað til :):)
Meira »
Goðheimaræktun | 12:23
Fórum á nýtt svæði í gær, vorum á svæðinu hjá hitaveiturörinu sem kemur frá svartsengi. Ýmir að fara mjög stórt og opið, er að reyna að stýra honum til að minnka slögin, það er bara þannig þegar lítið er af rjúpu stækka þeir bara slögin sem virkar allt í lagi á veiði, þú vilt jú fá fugl í pokann en virkar ekki vel í augum veiðiprófsdómara.Ágætis hlaupasvæði en ekki fjöður að sjá, ætli rjúpa sé ekki komin til fjalla í þessu snjóleysi. Það mætti alveg snjóa núna fyrir veiðiprófin. Er búinn að skrá Ými á veiðipróf næstu helgi og sýningu sem er í lok febrúar.
Meira »
 
Skrá inn





Hafir þú ekki skráð þig áður smelltu þá hérna.
Umræða á Netinu
Auglýstu frítt hér!
 

http://dyraland.is | Notkunarskilmálar | API

© 2000-2010 dyraland.is
Öll réttindi áskilin. Um fyrirtækið | S1

http://dyraland.is

© 2000-2010 dyraland.is
Öll réttindi áskilin. | S1