Frontur API

Frontur API gefur þér aðgang að kerfinu sem vefir Fronts keyra á, hægt er að skoða, breyta og bæta við efni.

APInn er nýr svo búast má við einhverjum villum í kerfinu. Ef einhverjar spurningar eða vandræði koma upp þá er hægt að senda inn fyrirspurn undir Development á vefsvæði Fronts. Nauðsynlegt er að hafa notendanafn og lykilorð til að senda inn fyrirspurn.

Til að nota föllin sem boðið er uppá þarftu að sækja um API lykil. Í flestum föllum sem boðið er uppá þarf þennan lykil. Hvert forrit VERÐUR að vera með sinn API lykil. API lykilinn kostar ekkert og tekur aðeins stutta stund að skrá sig.

Einnig er hægt að sækja JSON útgáfu ef vefþjónustunum, það er gert með því að bæta /js fyrir aftan slóðina á þjónustunni, t.d. http://dyraland.is/dev/Domain.asmx/js. Hægt er að sjá dæmi hérna. 1 | 2

Allar upplýsingar hvernig Frontur API virkar og notendaskilmálar(Term of Use) birtast á ensku.

Forrit sem hægt er að sækja

Demo

This is a demo application on how you can use the Webservice API. This a simple application written in C#.

Barnaland Myndainnsetning

Java forrit sem ætlað er að geta með einföldum hætti hlaðið upp myndamöppu í heilu lagi á Barnaland síðuna þína. ||| KERFISKRÖFUR:: Java 5 eða nýrra ||| UPPSETNING::Sækið zip skrána, afþjappið hvar sem að þið viljið á tölvunni ykkar, og ræsið .exe skrána. ||| Forritið virkar í grófum dráttum þannig að það biður notandann um notendanafn og lykilorð, listar svo upp síðurnar þínar þar sem þú velur svo síðuna sem þú vilt vinna með. Þegar þetta er komið, bíður forritið svo í hægra horninu eftir því að valin er mappa. ||| Heiti möppunar á tölvunni þinni verður nafnið á Barnalandsmöppunni og öllum myndunum í möppunni er hlaðið upp. ||| Þekktir gallar í forritinu: * Icon birtist ekki í kerfisbakkanum heldur kemur bara eyða. Hægri smell í eyðuna sýnir menuinn. Verður leyst í næstu útgáfu. * Staðsetning á gluggum sem biðja um notendanafn og lykilorð og einnig glugginn sem biður um að velja vef, er þessleg að ekki er augljós að verið er að biðja um upplýsinar. Hafa augun opin :) Verður leyst í næstu útgáfu. * Villuskilaboð eru ENGIN. Ef villa kemur upp er hún bara gleypt og notandinn veit ekkert af því. Lagað í næstu útgáfu. ||| ATH: Þessi hugbúnaður var fyrst og fremst búinn til af því að ég er svo latur að ég nennti ekki að færa myndirnar inn hverja af annarri á vefnum og er því aðallega búinn til fyrir mig og mína tölvu. Því tel ég mig knúinn til að taka fram að: *ÉG TEK ENGA ÁBYRGÐ Á NEINUM VANDAMÁLUM SEM KYNNU AÐ KOMA UPP EF ÞÚ ÁKVEÐUR AÐ SÆKJA BÚNAÐINN OG NOTA HANN. ||| Annars vona ég að forritið komi að góðum notum.

pm mananger

mangerar pm
ssé
sýnir pm og sendir pm

 
Skrá inn





Hafir þú ekki skráð þig áður smelltu þá hérna.
Umræða á Netinu
Auglýstu frítt hér!
 

http://dyraland.is | Notkunarskilmálar | API

? 2000-2010 dyraland.is
Öll réttindi áskilin. Um fyrirtækið | S1

http://dyraland.is

? 2000-2010 dyraland.is
Öll réttindi áskilin. | S1