1. mars 2010 22:17

Góða kvöldið gott fólk !!

Hér er allt gott að frétta allir hressir já við hestaheilsu eins og sagt er í sveitinni.

Nú fer að líða að kattarsýningu Kynjakatta en hún verður haldin að Miðhrauni þann 13 og 14 Mars næstkomandi,frá Kolsholtsræktun koma Coco Ísabella,Rómeó,Millý,Erró,Eir,og Fiðla Sól en hún er fyrsta afkvæmi Coco Ísabellu og Nabims sem fer á sýningu og er hún í ungdýraflokk það verður gaman að fara með hana og sjá  dóma afkvæmi Coco Ísabellu og Nabims.

En allavega þá eru loksins komnar nýjar myndir endilega kíkið á þær og muna að kvitta í gestabókina .

Engin athugasemd
20. febrúar 2010 20:09

Góða kvöldið gott fólk !

jÁ Hún á afmæli í dag hún á afmæli í dag !!! elsku Arena mín er  9 ára í dag þessi elska :)

hún er búin að fá Murr í morgunmat og kjúkling í kvöldmat og er svo ánægð með sig södd og sæl.

Nýjar myndir koma fljótlega hafið það öll sem allra best og góða helgi gott fólk.

Engin athugasemd
7. febrúar 2010 22:15

Góða kvöldið gott fólk

ég fór með Brandý í sónar fyrir helgina og hún er því miður gerfiólétt og því verðum við bara að vona það besta að hún verði kettlingafull sem fyrst.

Allavega er þetta það helsta að frétta að sýning kynjakatta verður 13 og 14 Mars oger þegar búið að skrá 97 ketti svo nú er bara drífa sig að skrá kisuna sína á sýninguna og vera með, tala um kisur við kisufólk heila helgi er svo skemmtilegt og fræðandi,nánari upplýsingareru á síðu kynjakatta.

Bless í bili og góða nótt gott fólk.

Engin athugasemd
4. febrúar 2010 15:19

Góðan dag gott fólk !!

Já nú er eitt ár síðan Erró Eir og Eik fæddust ég vil óska þeim til hamingju með daginn og án efa fá þau öll eitthvað gott að borða í dag :)

Annars er svo sem ekkert að frétta  frá Kolsholtsræktunn annað allavega ekki í bili.

Eigið öll góðan dag og bless í bili :)

Einn hefur sett athugasemd
29. janúar 2010 17:52

Góða kvöldið gott fólk !!

Hér er allt gott að frétta Brandý kettlingafull og vonandi gengur allt vel hjá henni hún gítur fljótlega eftir mánaðarmótinn hún er allavega spræk og hraust og það er það sem skiptir máli.En því miður er Arena ekki kettlingafull núna vonandi kemur hún bara með got seinna á þessu ári en allavega er hún líka hress og kát þessa daganna tilbúin í ömmuhlutverkið.

Búið er að skrá Coco Ísabellu og Rómeó á sýningu Kynjakatta sem í 13 og 14 Mars næstkomandi.

Allavega allt gott að frétta og eigið öll góða helgi.

Engin athugasemd
17. janúar 2010 23:46

Góða kvöldið :)

Allt gott að frétta frá Kolsholti kisur og menn ánægð með góða veðrið .

Var loksins að bæta inn nýjum myndum í janúar albúmið

Bestu kveðjur frá Kolsholtsræktunn :)

Engin athugasemd
11. janúar 2010 16:58

Góðan dag gott fólk :) og gleðilegt nýtt ár !! Hér er það helsta að frétta mér sýnist á öllu að von sé á kettlingum um næstu mánaðarmót eða í endan Janúar og byrjun Febrúar .

Annars er allt gott að frétta og komið Janúaralbúm en þó bara með 3 myndum af Darra Draum og Diljá Draumey sem ég fékk senda frá eiganda þeirra og þau eru svo gullfalleg.Svo koma fleiri myndir von bráðar.

Bestu kveðjur í bili.

Engin athugasemd
31. desember 2009 13:23

Góðan gamlársdag gott fólk !!

Þá er árið á enda :) já það sem helst var á þessu ári að 8 kettlingar fæddust á árinu og eru þeir allir komnir á gott heimili að undanskildum einum sem fór til guðs.

Kattarsýningar gengu vel Arena varð stigahæðsta ræktunarlæða,Rómeó Stigahæðsti ræktunnarfress,Brandý varð Alþjóðlegur meistri og Bis læða á árinu,Coco varð Meistari og Millý undan Brandý og Nabim varð einnig Bis á árinu og Biv,Eir varð Bis ungdýr og er hún undan Arenu og Nabim,Einnig varð Kolsholtræktunn stigahæðstaræktuninn sem sagt árið var gott hjá Kolsholtsræktunn.Einnig kom mynd af Djákna Ramus frá Kolsholti á forsíðu Mannlífs með eiganda sínum Bubba Morteins glæsilegur köttur og frábær mynd af þeim saman.

Svo nú er bara að vona að allt gangi vel næsta ár og það er von á kettlingum um mánaðarmótin Jan-Febr 2010 .Kolsholtræktunn óskar öllum velfarnaðar á næsta ári og megi guð og gæfa fylgja ykkur öllum.

PS allir að passa að dýrin séu inni í ALLAN DAG og leyfa þeim að vera í friði inni í skáp eða hvar sem þau kjósa að vera á þessum dýrðardegi.

Engin athugasemd
15. desember 2009 23:14

Góða kvöldið gott fólk !!

Allt fínt að frétta frá Kolsholti allir hressir og kátir  :) enda mikið um að vera að fylgjast með öllum jólaundirbúning,já Abyssinian kisur missa ekki af neinu sem fer fram á heimilinu eða kemur inná heimilið.

Var loksins að setja nýjar myndir í albúmið endilega kíkið á þær jólaundirbúningur og myndir af köttunum með jólasveinahúfu sem þau voru reyndar ekkert rosa hrifin af,en hún var keypt sérstaklega fyrir Rómeó en hann var svo sem ekki að fýla hana heldur :)

Endilega kíkja á myndirnar og kvitta í gestabókina.

Engin athugasemd
5. desember 2009 09:25

Góðan dag gott fólk :)

Hér er það helsta að frétta að Nabim  er 5 ára í dag :) hann  er sko hress og kátur með það !! Brandý vaðr 3 ára 25 Nov og ætla þau því eyða afmælisdeginum saman og hafa voða gaman :)  þau fengu gott að borða í gærkvöldi og svo fá þau eðalmat í dag,Nabim fékk líka nýtt dót í dag.Nabim á 28 afkvæmi á lífi og hvert öðru fallegra og skemmtilegra enda Nabim með afbrigðum skemmtilegur köttur eins og allir Abyssinian kettir eru reyndar :) ,svo koma vonandi fallegri kettlingar eftir um 60 daga eftir þetta afmælisstefnumót Nabims og Brandý.Nabim kom frá Noregi um vorið 2005 bjó í borg óttans (Rvk) þar til í Maí 2006 þá flutti hann í Kolsholt og hefur verið í sveitinni síðan besti vinur hans er Týró og Skotta besta vinkona en eru BorderCollý hundar .Bestu kveðjur og eigið öll góða helgi.


 

 

 

 

Til hamingju með daginn elsku Nabim þú ert bara yndislegur kisi og ekkert annað orð til yfir þig .


Engin athugasemd
26. nóvember 2009 21:56

Góða kvöldið gott fólk :)

Hér er allt gott að frétta og einnig af kettlingunum hennar Coco og Nabims sem eru öll ánægð og allir ánægðir með þau á nýju heimilinum sínum.

Mig langaði bara að segja ykkur að það er mynd af Djákna Ramus  frá Kolsholtsræktunn framan á Mannlíf endilega kíkið í blaðarekkan þegar þið farið í búðina og sjáið hvað hann er fallegur :).

Bestu kveðjur og góða helgi gott fólk

Einn hefur sett athugasemd
22. nóvember 2009 21:22

Góða kvöldið gott fólk :)

Hér er allt gott að frétta allir hressir og kátir í góða veðrinu.Allir kettlingarnir eru komnir á sin heimili og allir nýju eigendurnir ánægðir með þá enda ekki hægt annað með svona skemmtilega kattartegund ;)svo vona ég bara að nýju eigendurini sendi mér myndir svo ég geti sett á síðuna til að fólk sjái hvað þau verða falleg með hverjum deginum með veiðihár og allt :)

Allaveg allt fínt að frétta og enginn tarsanleikir sem stendur þar sem kettlingarin eru farnir.

Bestu kveðjur og eigið öll góða viku framundan.

Engin athugasemd
4. nóvember 2009 21:43

Góða kvöldið hér er allt gott að frétta allir hressir og kátir.

Coco er þessa daganna að bera inn alla vetlinga og húfur svo það er alltafveriða að tína þetta saman eftir hana :) hún virðist halda að kettlingunum langi áð vera með vetlinga ,sokka og húfur en það eru allir alveg hlessa á þessu veseni á henni bæði ungir sem aldnir kettir ;)

En allavega þá er allt gott að frétta og loksins komnar nokkran nýjar myndir í albúmið bless í bili og endilega kvitta í gestabókina gott fólk.

Engin athugasemd
23. október 2009 23:06

Góða kvöldið hér er allt gott að frétta.

Kettlingarnir fóru í heilsufarsskoðun ,bólusetningu og örmerkingu í morgunn og gekk það ljómandi vel og  allir hraustir og heilbrigðir :)

Setti inn nokkrar myndir af þessum skæruliðum sem voru að vakna og því tilvalið að mynda þau.

Bestu kveðjur til ykkar og góða helgi .

Engin athugasemd
19. október 2009 10:47

Góðan dag gott fólk hér gengur allt ljómandi vel allir hressir,kátir og alveg rosalega sprækir allavega yngstu meðlimirnir :)

Nú eru loksins komnar myndir af sýningu Kynjakatta inn í albúmið af alls kyns kattartegundum sem er svo gaman við kattarsýningarnar allar þessar misjöfnu tegundir katta allt frá hárlausum að þeim kafloðnu og hverjum og einum finnst sín tegund uppáhalds og fallegust en auðvitað þykir hverjum og einum sinn fugl fagur eins og máltakið segir.

Bestu kveðjur og endilega kíkið í albúmið og kvittið í gestabókina.

Engin athugasemd
14. október 2009 10:57

Góðan daginn

Þá er kattarsýningunni lokið og Kolsholtsræktuninn kom mjög vel út :) Brandý var NOM OG BIS báða daganna sem þíðir að hún var besta stutthærða ógelda læðan í CAT III en þar er allir stutthærðu kettirnir saman komnir Einnig varð hún Alþjóðlegur meistari á Laugardaginn og fékk svo á Sunnudag sitt fyrsta stig uppí Alþjóðlegan stórmeistarann.

Millý varð í flokki geldra læðna BIV báða daganna sem þýðir best í lit og gerð,svo var hún NOM og BIS á Sunnudaginn sem þýðir besta gelda læðan einnig fékk hún 2 stig til meistara.

Eir keppti í ungdýraflokk og var BIV OG NOM báða daganna og BIS á Laugardeginum en þar var Sómala læða sem var jöfn henni báða daganna og þurfti því að draga báða daganna um hvor hliti titilinn BIS og var Sómala læðan dreginn á Sunnudeginum svona kemur fyrir ef báðir kettir eru góðir og þá er erfitt eða velja á milli.

Erró var einnig á sýningunni og fékk mjög góða dóma og átti dómarinn á Sunnudag erfitt með að velja milli þeirra systkyna Erró og Eir en þar sem Erró er dálítið gelgjulegri  núna var Eir valinn en hann fékk mjög góða dóma enda gullfallegur köttur.

Bjarmi fékk 2 stig uppí Alþjóðlegan Stórmeistara geldra og mjög góða dóma báða daganna

Arena var stigahæðsta ræktunnarlæðann í CAT III Laugardag og Sunnudag. Kolsholtsræktuninn varð stigahæðsta ræktuninn bæði Laugardag og Sunnudag.

Sem sagt þá er ég mjög ánægð með dóma á ræktuninni minni þar sem allir kettirnir fengu frábæra dóma þessa helgina.

Nú eru loksins komnar nýjar myndir á Kettlingunum í albúmið endilega kíkið á þær og muna að kvitta í gestabókina.

Bless í bili og eigið öll góðan dag .



Engin athugasemd
6. október 2009 17:26

Góðan dag

Loksins koma fréttir en hér gegnur allt vel allir kettlingarnir farnir að borða vel og orðin alveg kassavön reyndar bara fæddust þau kassavön :) svo gáfaðir þessar elskur.

Já það er sko orðið líf og fjör hér í Kolsholti allt á fullu i Tarsanleikjum frá morgni til kvölds enda ekki við öðru að búast þegar 4 skæruliðar eru á ferð.

Já ég var svo glóð að þeir voru fram að þessu með veiðihár en þá fór Brandý að skipta sér af og nagaði eitthvað af þeim af og Coco svo restina sjálf :( svo nú eru einginn kettlingur með veiðihár frekar en fyrri dagin hér í Kolsholti,en þetta er eðli Abyssinian læðna að gera þetta .

Jæja það er sem sagt allt gott að frétta og sýning Kynja katta um næstu helgi svo undirbúinigur er hafinn sýningnn verður að Miðhrauni 2 Garðabæ og allir gestir velkomnir.

Svo eru loksins komnar nýjar myndir  í albúmið en það er búið að vera eitthvað bilerý í tölvunni hjá mér og þess vegna svona langt síðan myndir komu.

Bestu kveðjur í bili.

Engin athugasemd
18. september 2009 21:02

Góða kvöldið :) gott fólk!!

Hér er allt gott að frétta tarsanleikir að hefjast hjá kettlingunum og allt eins og það á að vera,þau eru öll yndislega skemmtileg þessi systkyni og mjög falleg.

Sem sagt allt gott að frétta og kettlingarin farinir að skottast út úr kassanum og koma hlaupandi þegar þau heyra í fólkinu eins og litlir hundar,þau eru 4 vikna og dafna vel Coco Ísabella góð mamma og mjólkar þessum krílum vel öll feit og pattaraleg.

Það eru komnar nýjar myndir í albúið endilega kíkið á þær og muna kvitta í gestabókina.

Bestu kveðjur og góða helgi.

Engin athugasemd
10. september 2009 10:40

Góðan dag gott fólk.

Hér er allt gott að frétta allir hressir og kátir ,kettlingarnir farnir að spá í leið úr kassanum og hver verður fyristur verður spennandi að sjá.

Þau eru 3 vikna í dag og verða fallegri með hverjum deginum þessar elskur.

Coco Ísabella er svo passasöm á kettlinganna að hún víkur varla frá þeim og það verður að halda á heinni meðan maður tekur myndir,passar þá svo mikið vel enda eru þau öll feit og fallega hjá henni.

Það eru komnar nýjr myndir í albúmið endilega kíkið á þær og muna kvitta í gestabókina.

Bless í bili og eigið öll góðan dag gott fólk.

Engin athugasemd
4. september 2009 16:57

Góðan daginn hér er allt gott að frétta búið að ganga vel með kettlinganna og þeir verða fallegri með hverjum deginum,þau hafa fengið nöfnin Felix ,Fía Sól, Fiðla Sól og Fura sól.

Það er búið að vera mikið að gera í að skrá kettina á sýninguna og ætla Kolsholt kisur að mæta galvaskar að vanda,nema Coco Ísabella verður heima í móðurhlutverkinu sem hún stendur sig með stakri príði í.

Var að setja nýjar myndir í albúmið endilega kíkið á þær og muna kvitta í gestabókina.

Bestu kveðjur og góða helgi.

Engin athugasemd
28. ágúst 2009 10:49

Góðan dag hér er allt gott að frétta kettlingarnir dafan vel og verða stærri með hverjum deginum,þau eru öll búin að opna augun og eru hraust.

Coco Ísabella er mjög dugleg og passasöm mamma og stendur sig með stakri prýði eins og hennar ætt sæmir.

Nú fer að stittast í sýninguna og viti menn Eir ætlar að mæta með vinkonu sína sem er Bengal læða sú eina í þessum Bengallit á Íslandi,það verður gaman að hitta þær.

Svo verða Tumi og Tanja að vanda og trúlega Talía líka :) já fullt af Abyssinian ættinni.

Bestu kveðjur til ykkar og endilega kíkið í albúmið það eru nýjar myndir af kettlingunum og einnig eru komnar nýjar myndir af Mandý á síðnun Kettir frá Kolsholtsræktunn, og endilega kvitta í gestabókina.

Góða helgi gott fólk.

Engin athugasemd
23. ágúst 2009 17:32

Góðan dag kettlingarnir dafna allir voða vel hjá Coco Ísabellu þyngjast allir vel og ein læðan er meira að segja farin að opna augun .Þetta eru 3 læður og einn fress svo nú er bara finna einhver falleg nöfn á þau systkyninn :)

Setti inn nokkrar myndir af kettlingunum sem stækka svo mkið með hvernum deginum,endilega kíkið á myndirnar og muna að kvitta í gestabókina.

Engin athugasemd
19. ágúst 2009 22:48

Góða kvöldið Coco Ísabella eignaðist 4 kettlinga í dag sá fyrsti kom kl 12,30 og sá seinasti sem er eini fressin fæddist um kl 15 held allavega að þeir séu rétt kyngreindir :) en þessir rassar eru dálítið litlir :) .Þeir eru frá 94 gr uppí 104 gr og allir eru sprækir og Coco er mikið ánægð með þá er var orðin dálítið þreytt þegar seinast kom í heimin.

Nú er bara vona að allt gangi vel hjá Coco í að mjólka þeim og hugsa um þá .Það eru nokkrar myndir komnar í albúmið en því miður eru sumar hreifimyndir því myndavélin er eitthvað vitlaust stilt,kíkið endilega á myndirnar af þeim nýfæddum.

Bestu kveðjur og góða nótt.

Engin athugasemd
18. ágúst 2009 14:58

Góðan dag :)

Hér er allt gott að frétta Coco Ísabella er rétt komin að því að gjóta svo nú er bara treysta á guð og lukkuna um að þetta gangi allt vel,þar sem það er nú alls ekki sjálfgefið.

Annars fer að styttast í að skrá kisurnar á sýninguna :) hugsa málið hverjir fara og hverjir verða heima þetta árið :)

Setti inn nokkrar myndir í albúmið af Coco og kem svo með frekari fréttir þegar þær verða.

Eigið öll góðan dag og bless í bili

Engin athugasemd
5. ágúst 2009 13:44

Hann á afmæli í dag !!! hann á afmæli í dag  !!! já hann Rómeó :) er 4 ára í dag að verða afi í þriðja sinn eftir ca 2 vikur :) geri aðrir betur  og búin að lifa tímana tvenna þessi elska.Rómeó hefur eignast 16 kettlinga og hefur hálfa æfina  verið með járnplötu í fætinum.

 En allavega þá gengur allt vel og von er á kettlingum um 20 Ágúst Coco Ísabella er orðin sver og frekar köt enda komin með stóra bumbu og þá eignast Rómeó enn fleiri afa börn því hann er Pabbi Coco Ísabellu :).

Bestu kveðjur í bili frá Kolsholtskisum :)

Engin athugasemd
9. júlí 2009 10:33

Hæ hæ allt gott að frétta í góðaveðrinu :)

Var loksins að setja inn nýjar myndir sem teknar voru í veðurblíðunni einn daginn hér í Kolsholti.

Kær sumarkveðja til ykkar endilega kíkið á myndirnar ogkvittið  í gestabókina

Engin athugasemd
3. júlí 2009 14:42

Góðan dag :)

Hér er allt gott að frétta sól og blíða allir hressir og kátir.Rómeó fór í röngenmyndatöku með fótinn í gær morgunn,og er beinið alveg gróið saman loksins :) nú verður tekin í framhaldinu ákvörðun um hvort eigi að taka járnplötuna og skrúfurnar 6 í burtu,og eru dýralæknarnir að bera saman bækur sínar hvað best er að gera.

Coco er trúlega kettlingafull aftur allavega ekki farin að breima og bara sefur og er notarleg og góð við alla,svo það ætti að verða fjölgun um 20 Ágúst.

Sett inn nokkrar nýjar myndir í albúmið Kisur frá Kolsholti af Eir og Erró á sínum heimilum endilega kíkið á þær svo fallegar og góðar kisur eins og Abyssinian kisum sæmir.

Bless í bili og góða helgi muna svo að fara varlega í umferðinni þar sem mikil ferðahelgi er fram undan.

Engin athugasemd
21. júní 2009 08:19

Góðan dag :)

Hér er allt gott að frétta allir hressir og kátir.

Í dag eiga þær systur Millý,Mollý og Mandý eins árs afmæli við ósku þeim til hamingju með daginn þessum fallegu kisum og mamma þeirra Brandý og pabbi þeirra Nabim skila góðri kveðju.

Ég fékk sendar 2 myndir af Eik frá eiganda hennar og eru þær komnar í albúmið.

Bestu kveðjur frá Kolsholti.

Mollý frá Kolsholti í göngu með eignda sínum.


Engin athugasemd
10. júní 2009 21:56

Góða kvöldið

Því miður skeði sá sorglegi atburður að kettlingurinn hennar Coco dó í kvöld,hann fór að verða veikburða seinni partinn í gær og fórum við með hann til dýalæknis í morgunn og allt reynt til að hressa hann við en allt kom fyrir ekki .

Við Þorgls jörðuðum hann út í garði og gróðusetum fallegt blóm hjá honum og nú líður honum örugglega vel á kisuhimnum hjá Simba og Chaplín frændum sínum.

Vonandi gengur bara betur já Coco Isabellu næst þegar hún á kettlnga.

Bestu kveðjur og góða nótt.

Engin athugasemd
9. júní 2009 13:51

Góðan dag :)

Hér er það helsta að frétta að Coco mjólkar kettlingnum sínum allavega ekki enþá og því fær hann pela.hann er mjög duglegur og þyngidt vel,búin að opna bæði augun og allt lítur vel út hann er sprækur sem lækur :)

Arena er búin að hjálpa heilmikið til og koma Coco í móðurhlutverkið :) já það er gott að eiga góða gamla ömmu sem kann allt.

Bestu kveðjur í bili og endilega kíkja í albúmið þar eru nýjar myndir.


Engin athugasemd
3. júní 2009 10:42

Coco Ísabella fæddi einn Sorrel fress í gærmorgunn.Coco erfrekar óörugg enþá en þykir voða vænt um þennan fallega litla fress :) helst vill hún hafa mömmu sína Arenu með sér í körfunni sér til aðstoðar og er Arena mjöööög ánægð með það og gæti jafnvel hugsað sér að eigan hann bara.

En allavega eru þetta fyrstu fréttir og komnar nokkrar myndir í albúmið en þar sem Coco passar hann svo vel var mjög erfitt að taka myndiraf honum.

Bless i bili ogfrekari fréttir koma seinna.

Engin athugasemd
26. maí 2009 22:14

Góða kvöldið :)

Allt fínt að frétta frá Kolsholti.

Coco er að fá bumbu og er næstum ekkert til í leik lengurenda um 10 dagar til 2 vikur þanga til hún gítur.

Var að setja inn myndir af köttum sem eru frá Kolsholti og nýjir eigendur þeirra hafa sent mér,endilega kíkið á þær það fer vel um allar þessar kisur ogsumar eiga hunda sem vini og aðrir ketti.

Bestu kveðjur og góða nótt.

Einn hefur sett athugasemd
23. maí 2009 17:34

Góðan dag :)

Hér er allt gott að frétta Coco Ísabella er kominn með smá litla bumbu svo ætli það komi ekki eins og allavega einn kettlingur í Júní byrjun ef allt gengur vel eða jafnvel fleiri en það kemur bara í ljós.Kisurnar eru að vonum búnar að vera mikið úti í góða veðrinu.

Nú er sauðburður loks á enda svo nú fara að koma inn nýjar myndir einnig hafa eigendur katta frá mér sent mér myndir sem ég þarf að fara að setja inn líka.

Allaveg bless í bili og hafið það gott um helgina og farið varlega.

Engin athugasemd
4. maí 2009 21:38

Góða kvöldið :)

Hér er allt gott að frétta Erró, Eik og Eir eru öll flutt á heimilin sín og gengur vel hjá þeim öllum.Erró býr hjá góðri fjölskyldu og kisunum Ask ,Emblu og Skottu og hann er mjög hamingjusamur á nýja heimilinu.



Eik býr hjá góðri fjölskyldu og Cavalier hundinum þeirra og það gengur vel.Eir býr hjá góðri fjölskyldu og Bengal læðunni Snæju og eru þær perluvinkonur.

Annars allt gott að frétta Coco trúlega kettlingafull og ættu kettlingar að líta dagsins ljós um mánaðarmótin næstu ef allt gengur vel.

Sauðburður er hafin og eru fædd um 80 lömb svo það er mikið að gera í Kolsholti um þessar mundir.

Jæja bless í bili og hafið það sem allra best.

Engin athugasemd
14. apríl 2009 22:03

Góða kvöldið allt gott að frétta hér!!

Allir eru hressir og kátir og fer töluvert fyrir tarsanleikjum :)

Var loksins að setja nýjar myndir í albúmið endilega kíkið og kvittið í gestabókina :)

Bestu kveðjur frá Kolsholti

Engin athugasemd
4. apríl 2009 10:07

Góðan dag :) nú eiga þau Diljá Draumey,Darri Draumur og Djákni Ramus eins árs afmæli í dag!!!! og við óskum þeim innilega til hamingju með daginn.

Erró, Eik og Eir fóru ó örmerkingu og bólusetningu í gær og gekk það vel.Annars allt gott að frétta hér allir hressir og kátir.Coco er búin að veraá stefnumóti svo nú er bara að sjá til hvort hún verði mamma í byrjun Júní :)

Bless í bili og góða helgi.

Engin athugasemd
27. mars 2009 13:37

Góðan dag :)

Hér gengur allt vel Nabim og allar kisurnar búnar að fá viðringu í dag í góða veðrinu, reyndar ekki Erró, Eik og Eir þau eru inni enda bara smá peð enþá !!!! 7 vikna.

Var að setja nýjar myndir sem teknar voru í gær og dag endilega kíkið á þær,reyndar er frekar erfitt að taka myndir af þessum skæruliðum :)

Bestu kveðjur og góða helgi.

Engin athugasemd
25. mars 2009 13:08

Góðan dag :)

jæjæ hér gengur allt vel Erró ,Eik og Eir eru fjall hress og drasla ellt til eins og kettlingum sæmir eru ofaní öllu og uppá öllu sem sagt allt í hættu :) svo er tekinn sprettur upp fæturnar á heimilsifólkinu sem fyrlgir stríðsdans stöku sinnum.

Erró Eik og Eir eru öll yndislega svo góð mala öll og koma hlaupandi til að heilsa uppá mann ,Eir er sprækust og máltakið segir einmitt margur er knár þótt smár sé!!

Það eru loksins komnar myndir í albúmið sem voru teknar fyrir va 4-5 dögum endilega kíkið á þær.

Bestu kveðjur og muna kvitta í gestabókina.

Engin athugasemd
19. mars 2009 10:10

Jæja þá eru komnar einhverjar myndir af kattarsýningunni.En ég tók ekki mikið af myndum sjálf og eru því þessar myndir frá Steinunni,Kolbrúnu,Guðbjörgu og Hallfríði og þakka ég þeim kærlega fyrir að leyfa mér að byrta þessar myndir á síðunni minni.

Bestu kveðjur frá Kolsholtsræktunn

Engin athugasemd
17. mars 2009 22:12

Góðan dag þá er sýningkynjakatta afstaðin allar kisurnar fengu stigin sín. þær Brandý og Coco Ísabella kepptu svo um Alþjóðlega stigið á Sunnudag en aðeins getur einn köttur fengið stigið og Coco Ísabella fékk það.Bjarmi varð BIS = Besti geldi fressin í CAT III.

Brandý var BIV =best í lit og gerð,en dóttir hennar Millý vann svo BIV á Sunnudag.

Rómeó var stigahæðsti ræktunarfressin  í CAT III báðar sýningarnar sem sagt góð helgi liðin.

Ég vil þakka kisufólki og gestum fyrir skemmtilega helgi og svo koma myndir fljótlega á síðuna.

Bestu kveðjur í bili.


Engin athugasemd
12. mars 2009 09:22

Góðan dag hér er allt gott að frétta allir hressir og farin að undirbúa sýninguna um helgina :) já Brandý,Coco Ísabella,Bjarmi ,Rómeó og Millý mæta frá Kolsholtsræktun á Kynjakatta sýninguna að þessu sinni.

Sýning Kynjakatta verður að þessu sinni haldið í Miðhrauni 2 Garðabæ þar sem áður var dótabúðin JUST4KIDS við hliðina á Dýrariki.

Þetta verður gaman að komast í svona fínt húsnæði :) á kattarsýningu upphitað og notarlegt fyrir menn og kisur.Sýningin opnar um 10 fyrir gesti og verða um 160 kettir á sýningunni af mörgum tegundum,svo allir ættu að kíkja,svo eru gæludýraversalnir með góðtilboð af kattardóti og fóðri sem vert er að kíkja á.

Ég vil endilega byðja þá sem eru að spyrjast fyrir um kettlinga að hryngja í mig eða senda mér póst,því ég vil síður vera sjálf að skrifa í gestabókina.

Annars bestu kveðjur og loksins eru komnar nýjar myndir af þessum sætu og skemmtilegu kettlingum endilega kíkið á þær og muna gestabókina,alltaf gaman að fá kveðju frá ykkur þar :)

Góða helgi og vonandi sá sem flestir sér fært um að kíkja á okkur á kattarsýningunna um helgina.

Einnig er hægt að sjá frekari upplýsingar á síðu Kynjakatta.

http://kynjakettir.is/

Engin athugasemd
3. mars 2009 10:22

Góðan dag

Her gengur allt vel kettlingarnir farini að fara úr kassanum og verða stuð á þeim.Arena reynir eftir fremsta megni að troða þeim í kassan aftur.

Coco er alltaf jafn sjúk í kettlinganna og má ekki af henni líta þá er hún kominn í kassan til þeirra.

Annars fer að stittast í syningu kynjakatta en hún  er haldin í Reyðhöll Gusts í Kópavogi daganna 14-15 mars 09 þar verða um 160 kettir  :) svo það er bara gaman fyrir fólk að koma og sjá alla þessa fallegu kattartegundir.

Setti inn nokkrar nýjar myndir endilega kíkið á þær og bestu kveðjur í bili.

Engin athugasemd
25. febrúar 2009 22:12

Góða kvöldið hér er allt gott að frétta!!

Brandý og Coco Ísabella fóru í bólusetningu í morgunn og gekk það vel þær eru báðar hressar og frískar.Brandý var 3,160 gr og Coco Ísabella 3,421gr sem sagt sú yngri er þyngri en hvað um það dýralæknirinn sagði að þær væru stæltar og fínar kisur.

Arena tók uppá því að flytja kettlinganna inn í þurkarann seinni partinn í dag,en þar voru ný þurkuð handklæði sem voru svona freistandi,en ég færði þá alla aftur í kassan þegar ég kom úr hesthúsinu og hafa þeir verið í kassanum síðan þá vona bara að þessi dilla sé búin í Arenu.

En allavega allt gott að freitta var að setja inn nýjar myndir í Albúmið!!!

Bestu kveðjur og góða nótt.

Muna svo að kvitta í gestabókina.

Engin athugasemd
20. febrúar 2009 11:39

Gíðan dag !!!

HÚN Á AFMÆLI Í DAG ! HÚN ER ÁTTA ÁRA Í DAG HÚN ELSKU ARENA MÍN Cool JÁ þessi elska og aldursforseti Kolsholtsræktunnar og reyndar öll ræktuninn kominn frá henni er orðin 8 ára með 3, 2 vikna kettlinga geri aðrir betur á hennar aldri :)

Annars er allt gott að frétta hér allti hressir og kátir,Brandý og Coco eru sjúkar í kettlinganna en þó er Coco verri notar hvert tækifæri til að fara í kassan til þeirra.

Rómeó er kominn í sitt hefðbundna hlutverk að liggja með Arenu sinni hjá kettlingunum og passa þá,enda stóri frændi þeirra.

Bestu kveðjur og góða helgi gott fólk!

SETTI LÍKA 17 NÝJAR MYNDIR  Í ALBÚMIÐ :)

Engin athugasemd
18. febrúar 2009 13:20

Góðan dag hér er allt gott að frétta !!Brandý og Coco Ísabella er báðar komnar með kettlingaveikina og geta ekki séð þá í friði og reyna með öllum ráðum að komast í kassan og stela systkynum sínum :)

En nú fer að stittast í sýningu og að mörgu að huga þá td passa að Brandý og Coco hakki ekki í sig kettlingafóðrið sem Arena á að borða til að mjólka vel.

Var að setja nýjar myndir í albúmið sem ég tók í morgunn og þau eru búin að fá nöfnin Erró,Eik,og Eir, stuttog laggóð nöfn eða hvað finnst ykkur ???

Kíkið á myndirnar og muna gestabókina :)

Þau eru ákkúrat 2 vikna í dag þessar elskur.

Engin athugasemd
17. febrúar 2009 15:04

Góðan dag Cool

Hér er það helsta að frétta að Coco Ísabella er alveg sjúk í að eiga kettlinganna !!!já  alveg kominn með ruglunaYell hún vælir og malar út í eitt og leggst hjá kettlingunum við hvert tækifæri,svo það er full vinna að passa hana þessa daganna.En allavega dafna kettlingarnir vel og búnir að opna augun og aðeins að rölta um kassan frekar valtir samt.Þar sem allt er búiið að vera á fullu hér í Kolsholti þá hefur verið lítið um myndartökur ! en ég er í fríi úr vinunni á morgunn og ætla að bæta úr þessu Smiletaka myndir á morgunn og setja í albúmið.

Bestu kveðjur til ykkar allra

Engin athugasemd
10. febrúar 2009 13:28

Góðan dag hér er allt gott að frétta við fórum á gæludyrasýningu á Selfoss síðastliðinn Föstudag þau Brandý,Coco Ísabella og Rómeó og gekk það voða vel allt fullt af fólki og það varð að fara stjórnaá bílaplaninu sökum fólksfjölda :),það voru þarna skóarkettir ,Bengal ,Persar og Main coon líka og hundar,þetta var bara gaman og Gerða og Svanur komu úr Reykjavík til að sjá sveitaliðið Laughing skemmtilegt það.

En annars er allt gott að frétta kettlingarnir þyngjast mjög vel og fressin þar orðin 236 gr já hann er þyngstur svo koma læðurnar.Læðan sem er fædd léttust er nánast búin að opna bæði augunKiss og svo hin smá rifur og fressin svo minnst enda eru þau ekki nema 6 daga gömul,Winken allavega gengur vel með þau og ég setti inn í albúmið nokkrar nýjarm myndir af þeim og þau eru náttúrulega kominn á uppeldisteppið góða sem allir kettlingar frá Kolsholti alast upp á Cool.

Endilega kíkið á myndirnar og muna gestabókina.

Engin athugasemd
4. febrúar 2009 11:48

Jæja þá er þetta  afstaðið komnir 2 læður og 1 fress og öllum virðist heilsast vel.Held að þetta sé örugglega rétt kyngreint hjá mér vona það allavega :)

Bless í bili myndir komnar af kettlingunum í albúmið.

Engin athugasemd
4. febrúar 2009 08:21

Góðan dag!

Fyrsti kettlingurinn er fæddur fress kl 07,20 í morgunn nokkrar myndir komnar í albúmið,frekari fréttir síðar .

Engin athugasemd
3. febrúar 2009 11:38

Góðan dag !!!

Hér er allt gott að frétta Arena er kominn í gokassan sinn af gömlum vana með sama lopateppið á sama stað,og með all hele famelien!!!!! í kassan allir þveignir frá topi til táar og bara  vona að Arena nagi ekki veiðihárin af liðinu :( það stittist nefnilega í sýningu.

Á Föstudaginn fer ég með Rómeó,Brandý og Coco Ísabellu á gæludýra kinningu á Selfoss við vorum beðin um að koma þangað og era frá 2 til 6.

En annars ekket annað að frétta Aladín.Anastasía og Aker áttu 3 ára afmæli í gær,og óska ég þem til hamingu með það !!!! þau eru fyrsta got Kosholtsrætunnar og nú 3 árum seinna eignast þau alsystkyni sem líta dagsins ljós von bráðar.

Ég kem með frekri kettlingafréttir þegar eitthvað skeður :)

Bestu kveðjur í bili

 

Engin athugasemd



mars '10 | febrúar '10 | janúar '10 | desember '09 | nóvember '09 | október '09 | september '09 | ágúst '09 | júlí '09 | júní '09 | maí '09 | apríl '09 | mars '09 | febrúar '09 | janúar '09 | desember '08 | nóvember '08 | október '08 | september '08 | ágúst '08 | júlí '08 | júní '08 | maí '08 | apríl '08 | mars '08 | febrúar '08 | janúar '08 | desember '07 | nóvember '07 | október '07 | september '07 | ágúst '07 | júlí '07 | júní '07 | maí '07 | apríl '07 | mars '07 | febrúar '07 | janúar '07 | desember '06 | nóvember '06 | október '06 | september '06 | ágúst '06 | júlí '06 | maí '06 | apríl '06 | mars '06 | febrúar '06 | janúar '06 | desember '05 | nóvember '05