Hæ hæ nú eru komnar glænýjar myndir af okkur kisunum í albúmið okkar.Við fórum öll út að viðra okkur í gær í góða veðrinu í sveitinni okkar og Rómeó varð allveg vitlaus að veiða flugur hoppaði og stökk út um allt,hann veiddi líka sínu fyrstu FISKIFLUGU Í GÆR hÚRRA FYRIR HONUM HANN HLJÓP MEÐ FLUGUNA ÚT UM ALLT EINS OG HANN HEFÐI VEITT EITTHVAÐ MMMMMMMMMMJJJJJJJJJÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖGGGGGGGGG STÓRT DÝR OG BORÐAÐI HANA SVO.
Annars er allt gott Arena bara hress samt orðin dálítið þung á sér en það fer að síga á seinni hlutan á meðgöngunni kannski kemur þetta bara í næstu viku.Svo fengum við kisurnar soðin svið að borða í gær og okkur þykir það sko gott og svo var bara lagt sig eftir þennan fína dag útiveru og át getur ekki verið betra þetta kattarlíf.Rómeó fór líka aðeins í Pleymó í gærkvöldi með Þorgils Kára en Rómeó vill alltaf vera drekinn í Pleymó kastalanum og það var tekinn ein mynd af Rómeó í Pleymó þið getið séð hana í myndaalbúminu,en svona eru Abyssinian kisur alltaf þar sem fólkið er og vilja taka þátt í öllu á heimilinu,td ef allir eru að horfa á sjónvarpið gera kisurnar það líka mjög skemmtilegar kisur.
Hafið það sem allra best um helgina gott fólk og endilega skoðið nýju myndirnar okkar og kvittið í gestabókina,en fólk virðist allmennt vera með einhverja fóbíu fyrir gestabókum.
Hæ hæ nú eru komnar nokkrar nýjar janúar myndir af okkur öllum,Annars er allt gott að frétta af okkur allir við hestaheilsu .Rómeó allveg stálstlegin eftir bólusetninguna í fyrradag.Og allir hafa verið að viðra sig í góða veðrinu í dag.Alls ekki vera feimin að skrifa í gestabókina okkar eða koma með athugasemd í vefdagbókina svo er líka hægt að senda okkur póst en þá klikkið þið bara á hafa samband og þá kemur það allt í ljós bæ bæ í bili.
Hæ nú er sko mikill snjór hjá okkur í sveitinni en við Rómeó og Simbi byrjuðum daginn með ganni slag og fórum svo út í snjóinn það var sko gamann allavega fannst Rómeó það spennandi.Arena er alltaf að verða sverari komin með myndalega kúlu og vill bara hafa það rólegt og er farinn að sofa á nýja ullarteppinu sínu,en stundum stelast strákarnir í körfuna hennar og þá leggur hún sig bara í þeirra í staðin.
Hæ hæ og hó hó,þá er komið nýtt ár.
Við erum öll heil á húfi eftir áramótin,við strákarnir vorum sko ekkert hræddir
en Arena var sko rosalega hrædd
þetta fór þó allt vel.
í dag 5 janúar 2005 er Rómeó 5 mánaða og orðin mjööööööööög fallegur,stilltur og prúður drengur,en stundum smá óþægur.Simbi er örugglega að herða Rómeó því þeir eru oft í ganni slag og líka stundum í alvöru slag,þegar Rómeó er búin að sitja fyrir Simba og stökkva á hann verður Simbi smá fúll sko.
Arena hefur frekar hægt um sig þessi jól og var mjög hrædd við kvellina í ragettunum um áramótin,svo við vonum að það verði ekki mikið sprengt á þrettándanum í sveitinni.
Annars óskum við ykkur velfarnaðar á nýju ári og endilega skoðið nýju myndirnar af okkur og skrifið í gestabókina okkar,hann Rómeó á jú afmæli í dag.