30. maí 2006 22:03

Góða kvöldið gott fólk.

Hér er það helst að frétta að hann Simbi sem kom fyrst á heimilið árið 2000, er dáinn þann 21 Maí,

og er hans sárt saknað á heimilin hann var svo góður og skemmtileg kisa en svona

er lífið víst ekki alltaf dans á rósum,við munum geyma minningar um hann í hjarta okkar

og hugsa um góðu stundirnar sem við áttum með honum,þær eru líka dýrmætar að eiga .

Annars var hún Jóhanna svo góð að senda okkur myndir af henni Anastasíu og eru þær komnar í albúmið okkar,endilega skoðið hvað hún er falleg kisa  mikil drottning með nýju vinkonu sinni sem er af  skóarkattarkyni þær eiga greinilega gott heimili.

Bestu kveðjur til ykkar í bili og muna Gestabókina elskurnar og góða nótt

Einn hefur sett athugasemd
21. maí 2006 08:35

GrátaHæ hæ þá er orðið tómlegt hjá okkur seinasti kettlingurinn fór á sitt heimili á föstudags kvöldið,

Já nú er Aker fluttur í Sandgerði til Sigríðar og á örugglega eftir að hafa það gott.

Annars er allt gott að frétta ,Tamos Nabim pabbi kettlinganna er fluttur til okkar í sveitina

en hann ætlar búa hjá okkur ef allt gengur að óskum,en það verður bara að sjá til hvernig það gengur.

Nú eru komnar nýjar myndir eða allavega seinustu myndirnar sem ég á af kettlinunum, svo eru líka myndir af kindunum og Þorgils Kára sem er 8 ára á sínu fyrsta hestamóti.

Svo eru myndir af Nabim en eins og ég hef sagt áður þá kom hann frá Noregi 2005 en hann er fæddur 5 des 2004,

OG MUNA AÐ KVITTA Í GESTABÓKINA ELSKURNAR EN EIGIÐ ANNARS BARA GÓÐAN SUNNUDAG.OG BLESS Í BILI.Svalur

Engin athugasemd
19. maí 2006 12:20

SvalurHæ hæ hér er allt gott að frétta ,Seinasti kettlingurinn hann Aker fer trúlega á sitt heimili

um eða eftir helgi,og þá verður sko tómlegt hjá okkur.

Það er mikið verið úti á daginn í góða veðrinu alltaf verið að veiða flugur

það þykir Aker sko mjög skemmtilegt svo kemur hann og kúrir hjá manni á milli þegar hann er orðinn

þreyttur og malar þessi lifandis ósköp,hann er svo mannelskur og kelinn þessi

litla elska svo það verður söknuður þegar hann fer.

Annars ætlum við að reyna að setja myjar myndir um helgina en það er búið að vera svo mikið að gera

í sauðburðinum hér í Kolsholti kominn 143 lömb og allt gengið vel,en lítill tími til að taka myndir

og setja á síðuna við reynum að bæta úr því,En endilega kvitta í gestabókina.

Bless í bili.Glottandi

Engin athugasemd
6. maí 2006 21:41

SvalurHæ hæ þá er loksins komið gott veður og allir farnir að vera meira úti.

Það er allt gott að frétta hjá okkur en þó farið að fækka í húsinu,

Aladín er fluttur til hennar Guðrúnar í Garðabæinn og hefur það víst eins og kóngur fær allt sem hann vill.Glottandi

Anastasía er flutt til Jóhönnu og hennar fjölskyldu í Reykjavík,þar var fyrir ein kisa og gengur það

víst ljómandi vel og Anastasía hefur það gott.Koss

Aker er því einn eftir hjá okkur en hann flytur svo í Sandgerði með henni Sigríði fljótlega,

svo það er orðið frekar rólegt hjá okkur að vísu er heilmikill leikur í Aker ,þannig að hann heldur uppi fjöri hér.

Það er búið að setja slatta af nýjum myndum í albúmið endilega kíkið á okkur og muna

að skrifa í Gestabókina það er svo gaman að fá kveðju frá ykkyr bless í biliGlottandi

Engin athugasemd



ágúst '10 | júlí '10 | júní '10 | maí '10 | apríl '10 | mars '10 | febrúar '10 | janúar '10 | desember '09 | nóvember '09 | október '09 | september '09 | ágúst '09 | júlí '09 | júní '09 | maí '09 | apríl '09 | mars '09 | febrúar '09 | janúar '09 | desember '08 | nóvember '08 | október '08 | september '08 | ágúst '08 | júlí '08 | júní '08 | maí '08 | apríl '08 | mars '08 | febrúar '08 | janúar '08 | desember '07 | nóvember '07 | október '07 | september '07 | ágúst '07 | júlí '07 | júní '07 | maí '07 | apríl '07 | mars '07 | febrúar '07 | janúar '07 | desember '06 | nóvember '06 | október '06 | september '06 | ágúst '06 | júlí '06 | maí '06 | apríl '06 | mars '06 | febrúar '06 | janúar '06 | desember '05 | nóvember '05