Góða kvöldið
Hér er allt gott að frétta Rómeó ánægður með börnin sín og Brandý kíkir á systkyni sín af og til.
Það var orðið frekar þröngt í kassanum hjá Arenu og kettlingunum því Rómeó og Brandý voru kominn í hann líka , og það gekk ekki upp því það varð alltof mikið að gera hjá Arenu að snyrta og þvó þeim líka til viðbótar kettlingunum , svo ég varð að fara að stjórna þessu. Arenu þykir svo vænt um alla sína fjölskyldu og þeim vænt um hana að þetta er ótrúleg kisufjölskylda þau meiga ekki af hvort öðru sjá.
Kettlingarnir eru farnir að rölta um kassan og bæði búin að opna augun fressin Chaplín opnaði þau seinna svo er ég bara að hugsa um að láta læðuna heita Coco Chanel eins og Tönju datt í hug hún verður nefnilega svo sæt sýnist mér og reyndar Chaplín líka það er svo skrítið að vera með bláan kettling því þeir hafa alltaf verið ruddý hjá Arenu framm að þessu.
En bless í bili og góða nótt en ég verð víst að vera hér í vinunni í alla nótt.
PS Nýjar myndir í Albúminu.
Góðan dag
Jæja það var bara allt hvítt í morgunn þegar ég fór í vinnuna kl 7 það var nú frekar fúlt að þurfa að skafa bílinn en svona er þetta nú bara.
Hér gengur allt vel kettlingarnir búnir að opna augun og þau braggast vel .Það er enn ekki alveg komið í ljós með nafnið á dömunni hugmyndinn Coco Chanel kemur sterklega til greina við meltum þetta aðeins lengur.
Arena er svo fjölskylduvæn að hún vælir á Rómeó og Brandý þangað til allir eru komnir í kassan þá er hún ánægð og allir mala þar í kór , þetta er svo sannarlega samrímd kisufjölskyda.
En bless í bili og allir út í góða veðrið.
Góða kvöldið.
Hér er allt gott að frétta Rómeó er allur að braggast og haltrar um húsið , hann notar alltaf fótinn þegar hann gengur en heldur honum uppi þegar hann stoppar og situr. Dýralæknirinn skoðaði hann og leist vel á þetta þó svo löppin sé aðeins skökk þá verður bara að vera svo ef þetta er að gróa sem er aðal málið. Rómeó fer í myndatöku fljótlega í næsta mánuði.
Kettlingarnir braggast vel þau þyngjast vel reyndar stelpan aðeins þyngri í dag eða 222 gr en fressin blái Chaplín eins og hann á að heita er 208 gr . Nafnið á læðunni er ekki alveg komið á hreint endanlega .
Það eru loksins komnar fleiri myndir í albúmið frá fyrsta degi til dagsins í dag.
Bless í bili og góða nótt.
Góðan dag þá er það komið á hreit að kettlingarnir eru 2 blár fress og ruddý læða.
Fressin var 116 gr og læðan 112 gr þau voru bæði búin að þyngjast í morgun , fressin kominn í 124 gr og læðan 118 gr .Þar sem ég er að vinna þessa daganna þá koma því miður ekki myndir fyrr en í kvöld eða fyrramálið.
Bless í bili og eigið öll góðan dag.
Góðan dag !!
Myndir af sýningunni eru komnar í albúm af sýningunni um helgina.
Bless í bili.
Góðan dag
Hér er allt gott að frétta Arena er ekki búin að eiga kettlinganna en það hlýtur að fara að stittast svo það er bara að bíða róleg.
Sýninginn gekk vonum framar Brandý fékk sín CAC stig báða daganna , einnig BIV báða daganna sem er best í sinni tegund sem sagt besta ógelda Abyssinian læðan , hún var líka valinn NOM báða daganna valinn í úrslit ,hún fékk Box á Laugardeginum sem er besta ógelda læðan í kattagoríu 3.
Bjarma gekk líka vel fékk sín CAP stig báða daganna , og svo valinn besti geldi Abyssinian fressin á Sunnudeginum NOM.
Sem sagt þau systkyninn eru bæði mjög falleg og vel gerð fengu bæði mjög góða dóma . Bjarmi fékk mjög góða dóma fyrir sitt blíða skap , og reyndar Brandý líka en Bjarmi er betra sýningardýr því hann er svo rólegur á sýningum það haggar honum ekkert , alltaf svo rólegur eins og Rómeó pabbi sinn.
Einnig fengu kettlingarnir hans Rómeó og Vanillu mjög góða dóma . þóttu mjög fallegir og allir með þetta góða geðslag sem dómarin sagði vera einsdæmi fyrir svona marga kettlinga saman.
Svo sýninginn gekk vonum framar á Laugardeginum var Læða undan Rómeó valinn besti kettlingurinn af Abyssinian og svo Kettlingur undan Nabim besti Abyssinian kettlingurinn á Sunnudeginum svo allir fengu eitthvað .Tuma og Tönju systkynum Rómeó gekk vel , Tanja BIV báða daganna og NOM á Sunnudeginum besta gelda Abyssinian læðan og Tanja fékk líka síðasta meistarastigið sitt til IP þannig að hún varð alþjóðlegur meistari geldra sama dag og mamma hennar hún Tossie varð alþjóðlegur meistari
Tumi fékk sín stig, og Talía systir Tönju var NOM á laugardeginum og vann BOX geldra þá sem sagt besta gelda læðan í kattargoríu 3.
Sem sagt Veraldar og Kolsholts kisum gekk mjög vel á þessum sýningum og allir ánægðir með góða dóma á öllum kisunum.
Það koma svo myndir af sýningunni fljótlega í dag eða á morgunn svo læt ég vita þegar kettlingarnir fæðast og hvernig það gengur.
Bless í bili og þakka öllu kattarfólki fyrir skemmtilega helgi .
Góðan dag hér er allt gott að frétta.
Arena er orðin mjög sver og þung á sér , það ætti að fara að stittast í þetta er mest hrædd um að hún fari að gjóta um helgina þegar kattarsýninginn er .
Brandý er alltaf í stuði en er ekkert sérlega hrifin af þegar sýningaræfing fer framm , þá krumpast hún í framann fer í fílu ogvælir það er eins gott að vera ekki með neitt frekju væl á sýningunni.
Rómeó er farinn að stíga meira í fótinn með hverjum deginum og hárin farinn að koma heilmikið aftur , hann er þó haltur og fóturinn aðeins skakkur.
En allavega þá er að nálgast sýningu og ekki seinna vænna að byrja undirbúning og leita að gardínunum og því sem þarf að hafa með klóklippa og hreinsa eyrun ,strjúka yfir feldinn.
Bless í bili og hafið það sem allra best og allir að kíkja á sýningu kynjakatta um helgina í reiðhöll Gusts í Kópavogi frá 10-18 Laugard og Sunnud.
Góðan dag !!!!
Hér er sko allt gott að frétta , Rómeó fór eftir hádegi í gær á dýraspítalann .Hann var myndaður aftur og látin labba framm og aftur um spítalann þveran og endilangann .
Eftir miklar vanga veltur og skiptar skoðannir var sú ákvörðun tekinn að taka ekki skrúfuna að svo stöddu.Á myndunum sást að það er kominn gróandi í beinið og Rómeó er farinn að nota fótinn meira en hann gerði í fyrstu.En brotið er reyndar aðeins skagt en það er sagt allt í lagi finnst gróandi er kominn í það.
Sem sagt skrúfan látinn vera um sinn og Rómeó settur á verkjalyf í einhvern tíma áfram. Það er gott að treista á guð og lukkuna með Rómeó enda virðist hann eiga 8 líf eins og aðrar kisur þessi elska.
Arena er orðin nokkuð þreytt enda mikið að gera líka með stóru börnin Rómeó og Arenu hún er alltaf að þvo þeim og nú fór restinn af veiðihárum Brandýjar í gærkvöldi , svo Brandý verður eins og pönkari á sýningunni því miður þetta er sko ekki fallegt.
Svo er ein frétt í viðbót hann Bjarmi kemur á sýningunna en hún Ása hjá kynjaköttum hringdi í gær og spurði hvort ég vildi enn koma kisu ínn í pláss Rómeó það var nefnilega verið að laga eitthvað skrána svo við vorum aftur heppin .
Svo þau mæta systkyninn Bjarmi og Brandý reyndar verða þá allir kettlingarnir sem til eru undann Rómeó á sýningunni .
Það eru komnar nýjar myndir á albúmið endilega kíkið á þær og bless í bili.
Góða kvöldi.
Rómeó fer í þriðju aðgerðin á fimmtudags morgunn , þá verður skrúfan sem er laus tekinn og brotið skoðað svo út frá því , þetta lítur frekar illa út með að geta gróið saman en ef þeim lýst þannig á að það geti gróið saman á að láta á það reyna , þetta verður metið þegar búið er að opna og sjá hvernig þetta lítur út , ef ekkert er hægt að gera frekar fer Rómeó til feðra sinna á Fimmtudag .
Nú er staðan enn og aftur að treysta á Guð og lukkuna og vona það besta.
Kem svo með frekar frétti eins fljótt og ég get.
Brandý biður að heilsa ykkur hún sefur hér á tölvunni hjá mér.
Reyni að setja inn myndir á morgunn .
Bless í bili.