Þau eiga afmæli í dag !!! þau eiga afmæli í dag !!!!
Já húrra húrra þau Bjarmi og Brandý eru eins árs í dag og bæði ánægð með það hress og kát .Brandý situr í glugganum og urrar á snjófugtið í garðinum,hún vill náttúrulega stjórna því hvað er í garðinum.
Annars fá allir eitthvað gott að borða í dag í afmælinu.
Bæ bæ og eigið öll góðan dag gott fólk.
Góða kvöldið.
Hér er allt gott að frétta fyrir utan það að Rómeó er ekki enþá farin í aðgerðina til að taka skrúfuna enda ekki endanleg ákvörðun kominn.Rómeó virðist verða verri eftir því sem hann hreyfir sig og notar fótin meira og það er frekar sárt að horfa á hann langa að fara út á sólpall með Arenu og Brandý en eiginlega ekki geta eða treista sér í það.
Kettlingarnir dafna vel farinn að hlaupa og leika sér en eru frekar klaufaleg enþá en alveg ótrúlega sæt bæði tvö og sérstaklega skemmtileg fara bæði að malaþegar þeim er klappað, og koma þegar kallað er á þau.
En allavega eru loksins komnar nýjar myndir af kisunum öllum saman einhverjar endilega kíkið á þær og muna að kvitta í gestabókina.
Bestu kveðjur og góða helgi .
Góðan dag hér er það helsta að frétta Rómeó þarf víst að fara í þriðju aðgerðina
,því ein skrúfa er laus og veldur honum trúlega einhverjum óþægindum.Hann var myndaður og þetta lítur því miður ekki nóu vel út því annað beinið er farið að gróa saman lítillega en það grenra ekkert svo stál platan heldur því eingöngu saman.Þetta er ekki eins gott og dýralæknar vonuðust til að þetta yrði .En jafnframt sagði dýralæknirinn að Rómeó liti vel út þó fóturinn væri aðeins rírari en hinn þá væri hann frísklegur og fallegur að öðru leiti. Svo nú förum við bara í það að bíða og sjá hvernig dýralæknarnir meta þetta og hvenær henn verður settur í aðgerð .
Kettlingarnir eru alveg á fullu þessa daganna að æfa sig í að labba þó sérstaklega Chaplín hann virðist kjarkaðri núna allavega og labbar ýkjulaust alveg framm og aftur rosalega duglegur,svo er Brandý stóra systir er nú stundum ekkert skemmtileg stekkur á hann og veiðir en Chaplín kippir sér ekkert upp við það og heldur sínu striki þegar Brandý sleppir honum.
Coco Chanel er heldur kjarkminni enþá og vill vera hjá mömmu og pabba í öruggu umhverfi það er svo sem ekkert grín þegar verið er að veiða mann svona eins og Brandý gerir , Brandý er nefnilega smá afbríðisöm þessa daganna enda dekurdósin á heimilinu framm að þessu þó er hún nú að þvo kettlingunum þegar henni hentar og á það jafnvel til að vera vond við mömmu gömlu þetta er einhver unglingaveiki og mótþrói í Brandý .
En bless í bili .
Góða kvöldið
Hér er allt gott að frétta Chaplín og Coco farinn að koma inn í stofu og labba um en Brandú situr fyrir þeim og heldur að þau séu eitthvað til að leika sér að aumingja þau.
Brandý heldur enn að hun og Rómeó pabbi eigi að vera í kassanum og það er sko mjög þröngt á þingi það stundum.
Annars allt gott það eru komnar margar nýjar myndir endilega kíkið á þær og muna svo gestabókina .
Bless í bili og góða nótt.
Góðan dag hér er allt gott að frétta !
Chaplín og Coco stækka og stækka og eru bæði orðin töluvert yfir 300 gr þó svo Coco sé enn með vinninginn hvað varðar þyngdina , enda er Caplín alltaf að æfa sig í labbinu.
Rómeó og Brandý eru bæði aðveg sjúk í að vera virk í uppeldinu og það er oft mjög þröngt á þingi , Brandý tók sig til í gærkvöldi og þvoði systkynum sínum í bak og fyrir og var mjög ánægð með það sjálf malaði þessi lifandis ósköp meðan á þessu stóð , svo Brandý littla ætti að verða mjög góð mamma.
Rómeó er duglegur að fylgast með börnunum sínum eins og venja hanns er , hann er dálítið haltur og fer sennilega í myndatöku í þessari viku.
Það koma svo myndir eins fljótt og hægt er en það er mikið að gera í skólanum í ritgerðaskilum þessa daganna en það tekur vonandi enda.
Bestu kveðjur til ykkar úr sveitinni.