Góða kvöldið gott fólk.
Hér er allt gott að frétta , nú stittist í að Rómeó verði pabbi í annað sinn það gæti skeð um eða eftir helgi svo það er bara að vona það besta að allt gengi vel .
Það er ekki alveg komið í ljós hvort Arena sé kettlingafull en ætti að skírast fljótlega .
Brandý hefur það gott og er mikið í flugnaveiðum þessa daganna , hún var reyndar kominn í mikinn veiðihug hjá hænsnagirðingunni en lét sér nægja að vera í veiðistellingu, hænurnar og haninn eru nú helmingi stærri en hún svo það færi kannski ekki vel.
Nabim er heilmikið úti að viðra sig þessa daganna og vill þá helst vera með hundunum og kíkir á vini sína kanínurnar.
Sem sagt allir við góða heilsu hér á bæ
Bless í bili og kem með nýjar fréttir þegar eitthvað skeður og myndir vonandi fljótlega en talvan er eitthvað að stríða mér þessa daganna.
Góða kvöldið hér er allt gott að frétta .
Loksins eru komnar nýjar myndir í albúmið af Brandý og Nabim , þar sem Rómeó og Arena eru enn í kettlingaleik (vonandi allavega ) eru ekki myndir af þeim núna .
Endilega kíkið á nýju myndirnar og muna svo gestabókina.
Bestu sólarkveðjur til ykkar bless í bili.
Jæja nú kemur smá frétt,
það ber ekki á öðru að Arena sé eitthvað að gera sér dælt við Rómeó svo þessi skoðun hjá dýralækninum hefði mátt sleppa. Rómeó er bara mjög skotinn í henni
en hún urrar
nú aðeins á hann en það er víst partur af mökunarferli katta
, svo nú er að bíða og vona að út úr þessu komi kettlingar um miðjan Ágúst .
Nánari fréttir af þessu næstu daga og vonandi nokkrar myndir á morgunn .
Bless í bili.
Jæja góða kvöldið !!
Hér er það helsta að frétta Nabim fór í sína árlegu bólusetningu í dag og það gekk ágætlega hann var svo sem ekkert ánægður með að vera hjá dýralækninum ,Arena var tekinn með og það var athugað hvort hún væri kettlingafull og svo var því miður ekki , nema hún sé genginn innan við 3 vikur þá sérst það ekki , en allavega koma þá ekki kettlingar hér fyrr en í fyrsta lagi í Ágúst þanga til verðum við bara að vona það besta .
Það er samt alveg víst að Rómeó verður pabbi um næstu mánaðarmót með læðu sem kom á stefnumót til hans í sveitinna úr Hafnarfyrðinum það verður gaman að sjá hvað kemur út úr því.
En allavega bless í bili og svo reyni ég að vera dugleg að setja nyjar myndir sem fyrst sauðburðurinn er víst búinn og engar afsakannir lengur.
Bless í bili og endilega muna gestabókina.