Góða kvöldið hér er allt gott að frétta.
Kettlingarnir fóru í heilsufarsskoðun ,bólusetningu og örmerkingu í morgunn og gekk það ljómandi vel og allir hraustir og heilbrigðir :)
Setti inn nokkrar myndir af þessum skæruliðum sem voru að vakna og því tilvalið að mynda þau.
Bestu kveðjur til ykkar og góða helgi .
Góðan dag gott fólk hér gengur allt ljómandi vel allir hressir,kátir og alveg rosalega sprækir allavega yngstu meðlimirnir :)
Nú eru loksins komnar myndir af sýningu Kynjakatta inn í albúmið af alls kyns kattartegundum sem er svo gaman við kattarsýningarnar allar þessar misjöfnu tegundir katta allt frá hárlausum að þeim kafloðnu og hverjum og einum finnst sín tegund uppáhalds og fallegust en auðvitað þykir hverjum og einum sinn fugl fagur eins og máltakið segir.
Bestu kveðjur og endilega kíkið í albúmið og kvittið í gestabókina.
Góðan daginn
Þá er kattarsýningunni lokið og Kolsholtsræktuninn kom mjög vel út :) Brandý var NOM OG BIS báða daganna sem þíðir að hún var besta stutthærða ógelda læðan í CAT III en þar er allir stutthærðu kettirnir saman komnir Einnig varð hún Alþjóðlegur meistari á Laugardaginn og fékk svo á Sunnudag sitt fyrsta stig uppí Alþjóðlegan stórmeistarann.
Millý varð í flokki geldra læðna BIV báða daganna sem þýðir best í lit og gerð,svo var hún NOM og BIS á Sunnudaginn sem þýðir besta gelda læðan einnig fékk hún 2 stig til meistara.
Eir keppti í ungdýraflokk og var BIV OG NOM báða daganna og BIS á Laugardeginum en þar var Sómala læða sem var jöfn henni báða daganna og þurfti því að draga báða daganna um hvor hliti titilinn BIS og var Sómala læðan dreginn á Sunnudeginum svona kemur fyrir ef báðir kettir eru góðir og þá er erfitt eða velja á milli.
Erró var einnig á sýningunni og fékk mjög góða dóma og átti dómarinn á Sunnudag erfitt með að velja milli þeirra systkyna Erró og Eir en þar sem Erró er dálítið gelgjulegri núna var Eir valinn en hann fékk mjög góða dóma enda gullfallegur köttur.
Bjarmi fékk 2 stig uppí Alþjóðlegan Stórmeistara geldra og mjög góða dóma báða daganna
Arena var stigahæðsta ræktunnarlæðann í CAT III Laugardag og Sunnudag. Kolsholtsræktuninn varð stigahæðsta ræktuninn bæði Laugardag og Sunnudag.
Sem sagt þá er ég mjög ánægð með dóma á ræktuninni minni þar sem allir kettirnir fengu frábæra dóma þessa helgina.
Nú eru loksins komnar nýjar myndir á Kettlingunum í albúmið endilega kíkið á þær og muna að kvitta í gestabókina.
Bless í bili og eigið öll góðan dag .
Góðan dag
Loksins koma fréttir en hér gegnur allt vel allir kettlingarnir farnir að borða vel og orðin alveg kassavön reyndar bara fæddust þau kassavön :) svo gáfaðir þessar elskur.
Já það er sko orðið líf og fjör hér í Kolsholti allt á fullu i Tarsanleikjum frá morgni til kvölds enda ekki við öðru að búast þegar 4 skæruliðar eru á ferð.
Já ég var svo glóð að þeir voru fram að þessu með veiðihár en þá fór Brandý að skipta sér af og nagaði eitthvað af þeim af og Coco svo restina sjálf :( svo nú eru einginn kettlingur með veiðihár frekar en fyrri dagin hér í Kolsholti,en þetta er eðli Abyssinian læðna að gera þetta .
Jæja það er sem sagt allt gott að frétta og sýning Kynja katta um næstu helgi svo undirbúinigur er hafinn sýningnn verður að Miðhrauni 2 Garðabæ og allir gestir velkomnir.
Svo eru loksins komnar nýjar myndir í albúmið en það er búið að vera eitthvað bilerý í tölvunni hjá mér og þess vegna svona langt síðan myndir komu.
Bestu kveðjur í bili.