Velkomin
Hæhæ Velkomin á síðuna okkar. Við heitum Freki og Þruma :)


Um mig:
Freki sem heitir fullu nafni Hulduheims Amaroq Freki fæddist 11 maí 2007 ásamt 3 bræðrum. Mamma hans heitir
Heimskauta Dögunar "Ylfa" og pabbinn heitir Hydrargium Free Spirit "Lisko".
Nafnið mitt Amaroq þýðir: úlfur á grænlensku og nafnið Freki er úr Goðafræði en það er nafnið á öðrum úlfi Óðins.

Ég er mjög dökkur á bakinu með smá rautt á bakvið eyrun og á afturlöppunum,ég er með svolitla grímu, Helgu finnst ég vera svolítið líkur pabba mínum honum Lisko. Svo er ég líka með himinblá augu. :)

Hulduheims Nightsky Thunder eða Þruma eins og hún heitir í daglegu tali, við fengum hana 16.ágúst 2008 hún verður 2 ára í nóvember. Mamma hennar heitir Icy en pabbi hennar er líka pabbi Freka, hann Lisko, þannig að þau eru hálfsystkyni.

Hún er frekar ljós með úlfagráu á bakinu og á trýninu og með hægra augað brúnt en vinstra augað ljósblátt :)

Freki og Þruma eru rosalega góðir vinir og leika sér allan daginn. :)

Endilega verið ekki feimin við að kvitta í gestabókina.. Það er svo gaman að sjá hverjir skoða síðuna. :D




Þú ert gestur nr. 9386