Hæ hæ best að henda inn smá fréttum,
Síðan ég baðaði þær síðast... Jasmín Rós strax komin með fulltaf flösu og bara frekar ógeðslegt, langar ekki mikið klappa henni og svona útaf því.
Þær hafa það annars fínt, enginn ælt hér á bæ. Þær fengu harfisk í gær og urðu mjög sáttar með það.
Það eru að lodast inn nýjar myndir!
Birta er búin að vera svo mikil kelurófa undafarið, tekur uppá því að mjálma og mjálma haha
Jasmín heldur áfram að breima en aðeins minna.. samt er hún miklu verri en vanalega. Þær hafa fengið að fara út en Jasmín hefur ekki fundið sér kall ;)
Það er bara mánuður í barn systur minnar :) hún á von á þriðja gullmolanum. Hin eru Júlía og Óskar, sem kettirnir líka ekkert mjög vel við haha!
Einnig verður svo Jasmín Rós 12 ára í apríl, ekkert smá gömul
Bless í bili.
Er að fara láta inn mars myndir.
Í dag baðaði ég þær báðar, en Jasmín Rós er með svo mikið af flösu .... ógeðslegt. Þær voru ekkert mjög sáttar við mig.
Svo vakti Jasmín mig í morgun með að pota í andlitið á mér og ýta sænginni í burtu frá andlitinu.
Bless í bili.
Nýjir litir komnir á forsíðu og undirsíðurnar um okkur komnar á forsíðu. Í nótt ældi Birta Nótt en ég tel það vera útaf ég gaf henni smá mjólk. Hún liggur núna í kremju milli skjásins og tölvunnar og skil ekki hvernig henni getur liðið svona vel þar. Er alltaf svo hrædd um að hún fái flogakst þar og þá þyrfti ég að kasta tölvunni frá og öllu svo hún myndi ekki stórslasa sig, annars veit maður þegar hún fær kast því hún þá hleypur útum alla íbúð á harðaspretti og dettur svo niður allt í einu og fær kastið. Hún finnur það á sér fyrst og fer að hlaupa eins og brjálæðingur um íbúðina.
Hún fékk síðast flogakast í sept 09 og við kvíðum fyrir því næsta en það ætti að gerast bara á næstum vikum.
Bless í bili.
Fulltaf myndum í febrúar. Hætti með minningarsíðuna og færði Felix og Gulla yfir á undirsíðu hér.
Bless í bili.
Jasmín Rós er mjög kurteis köttur stundum, fyrir utan að hafa verið að suða um mat í allt kvöld og samt búin að fá að borða 2x sinnum, en ég var að búa um rúmið og taka öll kattahárin af lakinu og lét teppi yfir, hún stóð við hliðiná mér og fylgist með mér allann tímann, svo þegar rúmið var klárt og ég gaf henni leyfi þá fór hún og lagðist á teppið. Hún er samt ekki svona ef Gurrý býr um þeirra rúm, þá fylgist hún með örstutt en hoppar svo uppá rúmið og hreyfir sig ekki baun þó Gurrý lætur yfir hana og rúmið stórt þungt teppi, maður sér hana bara undir því og henni gæti ekki verið meira sama hahahaha :)
Bless í bili
Var að taka albúmið í gegn og snyrta það. Læðurnar hafa það gott. Báðar sofandi núna 
Var að skrifa nýjan texta á minningarsíðu Felixar og Gulla.
Síðan mun loka í nokkra daga í enda Feb (borga árgjald)
Bless í bili.
Enn og aftur ældi Jasmín... í þetta skiptið slatta á sófann og var "amman" ekki ánægð með það. Einnig var ég svefnburkan enn sofandi kl ca 14 svo Jasmín kom og í alvöru talað VAKTI MIG. Hún stóð þarna við hliðiná mér rosalega kelin og fór að pota í mig og ég vaknaði við það, þegar ég stóð upp hljóp hún svo inn í eldhús þar sem maturinn er geymdur haha.
Nýtt útlit og myndir
Halló kæru vinir 
Það er komið nýtt útlit á síðuna þeirra. Jasmín Rós ældi í dag, það er meiri ælustandið á henni undafarið, en samt ekkert mikið og þetta var nú bara "góð" æla í dag, ss. ekkert ógeðslegt að þrífa, leit bara út eins og einhver hefði sett kattamat þurrann á gólfið. Smekklegt ég veit, að lýsa þessu hahaha. Þær fengu að fara út í dag en fóru ekki út fyrr en ég Alda fór út og þá vildu þær loksins fá smá frískt loft. Núna er Birta Nótt voða kelin og góð. Jasmín Rós hefur verið undafarið að reyna fara uppá Birtu nokkur skipti, við værum búnar að taka hana úr sambandi ef hún væri ekki svona gömul og okkur finnst það óþarfi, hún er bara búin að vera undafarið skrítin.... rosalega smekklegt blogg haha. Þær fengu nýtt dót um daginn, svona prik með fjöður og þeim finnst það mjög gaman að leika með og svo fjórar litlar mýs og MEIRI lætin þegar þær fengu þær, það var ýtt þeim undir sófa og troðið sér þangað á eftir þeim og klórað í sófann og hlupið fram og til baka, svo mikil læti að Gurrý tók allar mýsnar og faldi þær þangað til seinna, úps.
En bæ í bili.
Nýr bakgrunnur.
Birta Nótt ældi í nótt en varla neitt, ekkert sem pirraði neinn allavega, nema að hún hafi ælt á nýju úlpuna mína er eini pirringurinn. Það eru myndir að koma inn eftir smástund. Þær fengu að fara út í dag og þeim fannst það æði. Einnig urðu þær eða Jasmín mjög ánægð að fá fisk í kvöld.
Það hefur enn verið vont veður og þær hafa ekkert verið að fara út. Í nótt stalst Birta Nótt í boxið á borðinu mínu sem var með afgang af köku, eða rauninni búið að borða allt en var smá eftir í botninum og hún var á fullu að sleikja það og svaka gott. Þær eru algjörir kjánar stundum... í gær þá faldi Birta Nótt sig bakvið gardínur og svo kom Jasmín hlaupandi á hana, þær voru að skiptast á (hver myndi halda að kettir gætu farið í leik ?) svo fór Jasmín bakvið og þá kom Birta hlaupandi og fóru í smá leik - slagsmál. Svo var Birta voða kelin við Gumma en um leið og hann ætlaði að klappa henni þá hljóp hún í burtu en kom alltaf aftur, voðalega stríðin þessi elska. Birta hefur verið að taka uppá því ennþá og opna hurðina að svefnherbergi Gumma og Gurrý fyrir hana Jasmín Rós sem elskar að liggja þar. Um daginn kom þruma og elding og þær urðu alveg rosalega hræddar, þó það kom bara ein og heyrðist ekkert í henni þá voru þær í sjokki í alveg hálftíma, eyrun vel opið og Birta Nótt var mest hrædd, vildi ekki koma nálægt neinum og sat krafkyrr og bara svo hrædd greyjið,
Ég er veik, sem er bara ömurlegt.
Bless í bili.
Kær kveðja, Alda og læðurnar 
Fréttir enn einu sinni. Læðurnar hafa það ágætt. Jasmín Rós ældi um daginn aftur, inní herberginu mínu (Öldu) og svo smá framm á ganginum. Ég þurfti að þrífa það upp takk fyrir, allir aðrir sofandi. Ég þoli ekki að þrífa upp ælu. Birta Nótt er enn mjög kelin og góð og við höfum varla verið enn að fara út en höfum kíkt út í örfáar mínútur en erum fljótar að koma inn aftur. Við elskum sumarið og þá erum við úti allann daginn, eða svona næstum. Jasmín Rós er búin að vera breimandi og hefur reynt nokkrum sinnum að fara uppá Birtu.... mér finnst það viðbjóður, þær eru báðar læður, ég ýti henni alltaf í burtu og stundum ef ég dreg Birtu til mín þá hleypur hin rauninni á eftir, gefst ekki upp fyrr en ég ýti henni í burtu og verð reið, það er ekki búið að taka Jasmín úr sambandi, bara sú yngri og það var fyrir mörgum árum.
Ég var að henda inn nokkrum nýjum myndum.
Kær kveðja, Kisulórur 
Hæ enn á ný 
Læðunum líður vel. Birta Nótt hefur verið mjög kelin undafarið. Þær hafa ekkert verið að fara út enda búið að vera kalt og þær vilja ekki fara út þó það sé bara smá vindur. Jasmín Rós ældi 2-3 sinnum og fyrsta skiptið á sófasettið, Gurrý varð sko ekki ánægð með það. Það er komið nýtt útlit á síðuna en það eru nokkrir dagar síðan það gerðist. Annars er ekkert mikið í fréttum, þær eru núna að hvíla sig hjá Gurrý. Frétti að systir mín sem á Neró og Evu hundana ætlar að selja Evu, hún er bara alltof fjörug og of mikil hvolpalæti og systir mín er núþegar með tvö börn og von á þriðja svo brjálað að gera hjá henni.
Fulltaf myndum hafa komið inn undafarið.
Bless í bili, Krúttlæðurnar.
Hæ hæ elsku vinir.
Jólatréð var sett upp á sunnudeginum nokkrum dögum fyrir aðfangadag, 20 desember minnir mig. Allir pakkar voru látnir undir tréð á aðfangadagskvöld og kelurófurnar fóru að skoða þá og eins og alltaf þá fann Birta sér góðan og sterkan pakka og lagðist á hann. Þessi jól fengu þær engar jólagjafir og gleymdist að kaupa harfisk handa þeim. Á aðfangadag um kvöldið komu orkuboltarnir Júlía og Óskar ásamt foreldrum sínum og gistu. Á gamlárskvöld gistu þau öll líka og kettirnir voru í felum næstum allt kvöldið svo sást lítið til þeirra.
Gleðileg jól fyrir stuttu og hátíð.
Gleðilegt nýtt ár og þökkum fyrir það liðna.
3/4 mánuðir þangað til Jasmín verður 12 ára !!
Nýárskveðjur, Krúttlæðurnar 
Krúttunum líður vel. Það er kominn desember, búið að skreyta allt og jólatréð verður sett upp á þorláksmessu. Þegar var verið að skreyta íbúðina voru kelurófurnar að fara í kassa og poka sem voru tómir á gólfinu. Það er aðeins 8 dagar til jóla, þessi jól fá þær enga jólagjöf afþví þær hafa ekkert alltaf verið að nota það sem þeim var gefið, en kemur í ljós hvort þær fái ekki bara eina mús að leika með. Birta Nótt ældi í nótt, rosalega ólíkt henni að æla. Höfum lítið komist út undafarið. Núna er gangurinn alltaf lokaður og hurðin ss læst með lykli svo Birta komist ekki þar, því hún hafði oft pissað þar.
Ég veit ekki hvort ég muni blogga meira í desember en ef ekki þá vil ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og hafið það sem allra best á nýju ári.
Jólakveðjur, krókavaðskrúttin 
Á morgun verður skreytt íbúðina, lágt og hátt og verður gaman að leyfa krúttunum að fylgjast með okkur :)
Birta Nótt pissar ENN á ganginn, erum farin að læsa þar inni núna.
Jasmín Rós ældi 2-3 sinnum í morgun, inn í stofu. En þær hafa svo sem lítið komist út og þá fær Jasmín ekkert gras að borða úti sem hjálpar maganum að líða betur, en Gummi kemur sjaldan heim í hádeginu úr vinnunni núna og ég Alda byrjuð að vinna 4 í viku :)!
Kær kveðja, snúllurnar 