
Tími til kominn á blogg frá mömmu okkar :o)
Við erum búin að vera algjörir englar eins og alltaf;) .. í dag kom hún Júlía Mist í heimsókn og Erna mamma hennar :) .. Birta Nótt gjörsamlega hékk í henni, voða kelin þessi elska ;* .. Jasmín Rós fékk uppáhaldskvöldmatinn sinn í kvöld sem var fiskur ! ;) voða ánægð með það, svo fengum við að fara útá svalir og mamma kom með gras og strjá og fleira, Jasmín finnst voða gott að borða það en Birta vill bara leika með það híhí:) .. svo var mamma að reyna að fá okkur til að smakka súkkulaðiís, myndaóð þessi kelling!:) .. svo ætlaði mamma að þrífa aðeins útá svölum með að hella vatni úr flösku og fór aðeins að skvetta á okkur, við alls ekki ánægðar með það hehe ;) ..
Það eru komnar HELLING af ágúst myndum! kerlingin hefur sko sannarlega verið dugleg að láta inn myndir:)
Svo er mamma búin að vera í megrun í tvær vikur og misst 5 kíló, voðalega dugeg :) ...
Endilega kvittið í gestabókina og kíkið á nýju myndirnar,
Mamma þurfti að breyta í myndavélinni þannig myndarnar eru ekki eins langar og skýrar, mamma var vön að minnka þær í forriti og vista en núna verður það svo óskýrt þannig hún verður að vista sem png og þá sést bara x í albúminu en maður ýtir á myndirnar og þá sér maður þær, mamma þolir það ekki.
Eins og allir segja, óskýrar myndir eru betri en engar myndir hehe:)
Knús og Kossar.
Birta Nótt og Jasmín Rós.
14.8.2007 | 22:27