

Hæ hæ Allir á dýralandi. Við höfum það mjög gott takk fyrir. Um daginn sluppum við báðar út um gluggann hjá Hauk frænda um kvöldið. Birta Nótt kom inn um leið og kallað var en Jasmín Rós sást ekki til svo mamma greip peysu og fór út að leita. Kom hún að henni með kærastanum. Þau fóru svo bæði undir bíl og Jasmín Rós neitaði gjörsamlega að koma til mömmu. Þegar Mamma kom nálægt henni þá kvæsti hún alveg og kærastinn líka á sama tíma. Tók mömmu hálftíma að ná henni en rennandi blaut á fótunum eftir að leggjast oft á blautu gangstéttina til að gá hvaða bíl hún væri undir. Mamma náði henni með að ná í kattarmatinn og svo toga hana til sín undan bílnum, mamma var orðin svo pirruð að hún sló hana afþví hún kvæsti bara (ekkert fast samt). Það styttist í 6 ára afmælið hennar Birtu Nóttar, mamma ætlar að kaupa harfisk og afmælisgjöf og svo kaupa kfc í kvöldmatinn á föstudaginn (afmælisdag Birtu Nóttar) því Birta ELSKAR kjúkling, mamma bara tekur af einum bita og lætur á disk, hún verður sko mjög sátt við það. Mamma ætlar svo að búa til afmæliskóronu, algjör siður (fliss), en ekki ákveðið hvernig hún verður.
Mamma er búin að vera mjög dugleg að taka Október myndir, alveg helling af myndum. Óskar Leó varð 13 mánaða um daginn. Júlía og Óskar komu í heimsókn í gær og Óskar litli var svo lasinn greyjið. Júlía klappaði okkur og lék við okkur.
Það eru komnar inn fleiri Október myndir, sko múttu okkar... virkilega dugleg að sjá um síðuna
annars höfum við það mjög gott, kannski mamma ætti ekki að skrifa það hingað inn en mamma er búin að finna tvö skipti kúkabletti á hillunni hjá sér
þá var kattakassinn orðinn eitthvað skítugur og við stigum alltaf á .. og svo löbbuðum við um íbúðina, mamma neitaði að þrífa það (Amma þrífur það)
og svo ældi Jasmín Rós í nótt á tveimum stöðum, hún var hætt
og hún er búin að vera svo breimandi að mömmu langar að læsa hana inni, hún er allann daginn.. ekkert smá uppáþrengjandi...
styttist í afmæli Birtu Nóttar, dúllan verður 6 ára gömul, svo stór þessi elska ![]()
Kveðjum í bili, nýtt útlit komið... já alltaf gaman að breyta til ![]()

