5. júní; Við erum æðislegar eins og alltaf, ekki langt síðan Jasmín Rós ældi nokkrum sinnum á ganginum en vonandi ekki að byrja aftur oftar, Birta Nótt var í gær alveg að drepast, klóraði í svalahurðina og vildi komast út NÚNA, svo var okkur hleypt út en þá tók litla frekjan uppá því að hoppa yfir grindverkið svo mamma þurfti að hlaupa á eftir henni (útum útidyrnar). Núna liggur hún hérna á tölvuborðinu og heyrist kelið í henni langar leiðir, og líka nýtur sín í sólinni, svo gott veður og skín inn um gluggann svo mín er bara komin í sólbað og læti, voða nice bara. Mamma er að fara til hfj á eftir en kemur svo heim á morgun snemma örugglega.

15. júní;
Seinustu dagar eru búnir að vera góðir. Æðislegt veður úti seinustu dagana og var æðislegt að liggja í sólbaði á pallinum. Svo í gær var afi, amma og mamma úti á sæng í sólbaði og kom letinginn og lagt hjá þeim, kelurófan fór bara út í horn í sólbað.

Í morgun slapp kelurófan út og hefur ekkert sést til hennar, búin að leita og leita, ef þið sjáið til Birtu Nótt í norðlingaholtinu þá hafa samband í síma 5671642, takk takk

16. júní; :'( :'( :'(
er komin með illt í hjartað og tár í augun, svo áhyggjufull :'( 5 ára kötturinn minn slapp út í gærkvöldi um 18:00 en hún er inniköttur og hefur ávallt verið, taugaveikluð úti oftast og hrædd en mjálmar svo sem ekkert ef hún verður hrædd. Leitað hefur verið af henni á fullu síðan þá og ekki fundist. Ef þið hafið séð til hennar eða vitið um einhvern sem er með hana þá hafa samband í síma 6981497. P.s hún heitir Birta Nótt, smávaxin svört, með hvítt á maganum og hálsinum og loppunum minnir mig, gulgræn augu, enga ól og ekki merkt held ég, ég bý í krókavaði en sást til hennar í kólgavaði í gærkvöldi en veit ekki meir:'(

www.birtan.dyraland.is  !! Á ekki mikinn pening.... held að fólk taki meiri þátt (sem búa í norðlingaholti) ef e-ð er í boði.. allavega fær manneskjan 2000 krónur ef hún finnur hana og kemur með hana heim.

17. júní; 

 

Bið ykkur um hjálp, hafa augun opin eða leita, ykkar val :) Litla skottan mín hún Birta Nótt slapp út um glugga þann 15 Júní '08 um 18:00 leytið. Hún er ómerkt og er innikisa og hefur bara einu sinni farið út (sluppið) nema oft á pallinn svo hún ratar ekkert. Hún verður 6 ára í Október en er mjög smávaxin, svört og hvít á loppum, maga og hálsi. Mjög krúttleg í andliti. Mjög kelin en samt taugahrúga úti oftast. Ef þið sjáið til hennar eða hafið uppl þá endilega hafa samband í síma 5671642.
Hún slapp út í Krókavaði í Norðlingaholtinu og er örugglega í norðlingaholti ..
Verlaun fyrir að finna hana eru 2000 krónur. Hennar er sárt saknað af mér "mömmu sinni", ömmu og stóru systur "Jasmín Rós köttur".

19. júní;

 

Mamma ákvað að henda inn fréttum. Eins og þið eflaust vitið þá slapp litla kelurófan út þann 15. Júní og fór beint í kólguvaðið, við erum í krókavaðinu. Hennar hefur verið leitað oft á dag en ekkert fundist eða séð til hennar. Svo sagði nágranninn að hann hafði séð hana en vissi ekki að við vorum enn að leita af henni. Svo í morgun kom mynd og upplýsingar í fréttablaðið og hringdi svo einn maður en sá kött með ól svo nei við hann, svo hringdi önnur í kvöld og sagði að hún hafði séð hana úti í hellivaðinu í gærdag eða gærkvöldi og við eyddum klukkutíma að leita af henni þar núna um 11 leytið og svo fór mamma fyrir nokkrum mínutum að hjóla og leita af henni, kallaði nafn hennar en ekki kom hún eða sást ekkert hreyfast nema grasið og draslið á svæðinu. Mamma reynir að vera bjartsýn og sterk og vona að hún komi sem fljótast en samt er þetta mjög erfitt fyrir hana að vera án litlu dúllunar sinnar og brotnar oft niður af söknuði, eins og hún sé dáin, það mikill saknaður....
Gerið þið.... að hafa augun opin norðlingaholtsbúar, ef þið hugsið bara um peningana þá er allavega 2000 kr í pottinum handa þeim sem finnur hana og kemur með hana heim til sín, hún er búin að vera fjóra daga í þessum kulda og örugglega ekkert búin að borða eða drekka, örugglega mjög svöng og mjög kalt og mjög hrædd litla skinnið okkar.... BIÐ YKKUR , AÐ HAFA SAMBAND Í SÍMA 5671642 ef þið sjáið hana eða finnið hana ... Annars hefur Jasmín Rós það fínt, hún mjálmar stundum uppúr þurru að þá að leita af systur sinni en ekki kemur hún... hún er búin að vera óþolandi kelin og er alltaf oní mömmu sinni, sefur í rúminu hennar alla daga og alltaf hjá henni, mætti halda að hún væri annaðhvort að taka Birtu Nótt stöðu eða hugga mömmu sína... Birta Nótt; Megi guð vera með þér litla ástin mín kv mamma :'(

20. júní;

 

19 júní; Birta Nótt er fundin,

Loksins er litla ástin komin heim í mömmufaðm aftur. Í gærkvöldi ætluðu mamma og amma að keyra upp í lækjavað þegar þær tóku eftir einhverju hreyfast við enda hversins í krókavaðinu. Þá var það hún Birta Nótt undir bíl :) Annars viljum við kærlega þakka konunni í götunni sem sá hana um daginn og hringdi, vissum að hún væri nálægt en hún var miklu léttari en vanalega og stax og heim var komið borðaði hún alveg stanslaust og drakk vatn með, fór á klóið og svaf hjá mömmu í nótt alveg rosalega vel og Jasmín Rós í mömmurúmi svo hún yrði ekki útundan. Núna liggur kelurófan í sólbaði og hefur það gott, fær hinsvegar ekki að fara út mikið á pallinn næstu dagana og í bandi þá. Annars höfum við það mjög fínt, á morgun koma Júlía og Óskar í pössun og verður örugglega gaman að hafa þau ;) en annars er kelurófan svo þreytt að hún var að vakna fyrir 20 mínútum, fór í sólbað í 5 mínútur og svo núna steinsofandi á gólfinu, mamma vill pottþétt leyfa henni að kúra á tölvustólnum en vill vera í tölvunni :s

27. júní;

 

Í gærdag fengum við að fara út á pallinn, auðvitað báðar fórum við yfir hann og beint útá götuna, og vorum þar að skoða allt og svaka gaman. Svo fórum við inn með ömmu og mömmu (sóttu okkur) og fórum sitthvort út í ól en sluppum svo báðar út á sama tíma útum stofugluggann sem var galopinn, gáfaðar. Sótt var okkur svo stuttu seinna. Í dag var tekin þá ákvörðun að við fengjum að vera útikisur, við vorum ekkert smá ánægðar. Fórum báðar út að leika og skoðuðum allt umhverfið, kelurófan strax farin og ekkert komið heim síðan eldsnemma í morgun en letinginn okkar er svo vel upp alin, hún heldur sig kringum húsið og kemur inn þegar hún er svöng, þreytt eða leiðist og fer svo út inn á milli, voða þæg og góð. Bíðum ennþá eftir að kelurófan komi og fái sér eitthvað í svanginn, gætu verið fjórir dagar eins og einu sinni...

28. júní; Ég og Mamma lögðum okkur í nokkra tíma upp í hjónarúmi í dag, eða klukkutíma og meira. Svo fórum við út í smá göngutúr og svo inn að lúlla meira. Birta Nótt hefur ekki enn skilað sér heim, fór út í morgun, djöfulsins vandræði með hana, getur ekki ratað heim til sín, mamma orðin pirruð á henni miðað við hvað ég er gáfuð.

28.6.2008 | 01:57



ágúst '10 | júlí '10 | júní '10 | maí '10 | apríl '10 | mars '10 | febrúar '10 | janúar '10 | desember '09 | nóvember '09 | október '09 | september '09 | júlí '09 | júní '09 | maí '09 | apríl '09 | mars '09 | febrúar '09 | janúar '09 | desember '08 | nóvember '08 | október '08 | september '08 | ágúst '08 | júlí '08 | júní '08 | maí '08 | apríl '08 | mars '08 | febrúar '08 | janúar '08 | desember '07 | nóvember '07 | október '07 | september '07 | ágúst '07 | júlí '07 | júní '07 | maí '07 | apríl '07 | mars '07 | febrúar '07 | janúar '07 | desember '06 | nóvember '06 | október '06 | september '06 | ágúst '06 | júní '06 | maí '06 | apríl '06 | mars '06 | febrúar '06 | janúar '06