Birta Nótt og Jasmín Rós hafa það fínt. Jasmín Rós ældi ekki langt síðan en bara eitt skipti. Birta Nótt er hætt að klóra í sófann. Hún er farin að verða dáldið gáfuð, hún felur sig inná gangi t.d sefur á skóm og þegar einhver opnar útihurðina þá smeygir hún sér út án þess að maður tekur eftir því, afþví þetta er oftast um kvöld og það er þá slökkt ljósið á ganginum. Hún hefur sloppið út 2 skipti um kvöld. En það er regla hér að þær fái ekki að vera úti nema til 19-20 á sumrin. Styttra á veturna að sjálfsögðu. Birta Nótt er líka farin að fara lengra í burtu og þegar maður kallar á hana þá sér maður hana koma hlaupandi langt í burtu, en hún ratar ennþá allavega til baka. Ég er komin með nýtt rúm, risa hjónarúm svo Jasmín Rós finnst algjört æði að fá að liggja á því, sefur oftast upp í rúmi hjá mér á kvöldin og Birta á tölvustólnum. Svo um daginn kom köttur fyrir utan hjá okkur og við urðum alveg snarar, gurrý er farin að láta alltaf púða fyrir gluggann á nóttunni. Um daginn voru þær að slást smá og Jasmín beit birtu í eyrað og kom blóð en ekkert alvarlegt hehe.

Ekki komnar fleiri myndir, verða ekkert mikið af myndum þennan mánuð, né næsta örugglega.

23.6.2009 | 18:28

Jæja, vissi að það væri nálægt að gerast og það gerðist kl ca 10.50-11.00 í morgun... Birta Nótt fékk flogakast, fékk það upp í rúmi hjá "ömmu og afa" þannig þar er stór pollur eftir hana, svo datt hún neðar á rúmið og var bara á jörðum stað á rúminu þar sem engin dýna er og fór svo beint á gólfið og þar endaði flogakastið, mjög erfitt að horfa uppá það.... svo var skellt dúllunni í bað og hún var svo róleg og góð en mjálmaði og mjálmaði þegar það var verið að baða hana og eftirá.

Hún fékk seinast flogakast í sept '08 svo hlaut að koma afþví næsta.. Frown

3.6.2009 | 11:19



ágúst '10 | júlí '10 | júní '10 | maí '10 | apríl '10 | mars '10 | febrúar '10 | janúar '10 | desember '09 | nóvember '09 | október '09 | september '09 | júlí '09 | júní '09 | maí '09 | apríl '09 | mars '09 | febrúar '09 | janúar '09 | desember '08 | nóvember '08 | október '08 | september '08 | ágúst '08 | júlí '08 | júní '08 | maí '08 | apríl '08 | mars '08 | febrúar '08 | janúar '08 | desember '07 | nóvember '07 | október '07 | september '07 | ágúst '07 | júlí '07 | júní '07 | maí '07 | apríl '07 | mars '07 | febrúar '07 | janúar '07 | desember '06 | nóvember '06 | október '06 | september '06 | ágúst '06 | júní '06 | maí '06 | apríl '06 | mars '06 | febrúar '06 | janúar '06