Það hefur enn verið vont veður og þær hafa ekkert verið að fara út. Í nótt stalst Birta Nótt í boxið á borðinu mínu sem var með afgang af köku, eða rauninni búið að borða allt en var smá eftir í botninum og hún var á fullu að sleikja það og svaka gott. Þær eru algjörir kjánar stundum... í gær þá faldi Birta Nótt sig bakvið gardínur og svo kom Jasmín hlaupandi á hana, þær voru að skiptast á (hver myndi halda að kettir gætu farið í leik ?) svo fór Jasmín bakvið og þá kom Birta hlaupandi og fóru í smá leik - slagsmál. Svo var Birta voða kelin við Gumma en um leið og hann ætlaði að klappa henni þá hljóp hún í burtu en kom alltaf aftur, voðalega stríðin þessi elska. Birta hefur verið að taka uppá því ennþá og opna hurðina að svefnherbergi Gumma og Gurrý fyrir hana Jasmín Rós sem elskar að liggja þar. Um daginn kom þruma og elding og þær urðu alveg rosalega hræddar, þó það kom bara ein og heyrðist ekkert í henni þá voru þær í sjokki í alveg hálftíma, eyrun vel opið og Birta Nótt var mest hrædd, vildi ekki koma nálægt neinum og sat krafkyrr og bara svo hrædd greyjið,

Ég er veik, sem er bara ömurlegt.

Bless í bili.

Kær kveðja, Alda og læðurnar Wink

24.1.2010 | 18:28

Fréttir enn einu sinni. Læðurnar hafa það ágætt. Jasmín Rós ældi um daginn aftur, inní herberginu mínu (Öldu) og svo smá framm á ganginum. Ég þurfti að þrífa það upp takk fyrir, allir aðrir sofandi. Ég þoli ekki að þrífa upp ælu. Birta Nótt er enn mjög kelin og góð og við höfum varla verið enn að fara út en höfum kíkt út í örfáar mínútur en erum fljótar að koma inn aftur. Við elskum sumarið og þá erum við úti allann daginn, eða svona næstum. Jasmín Rós er búin að vera breimandi og hefur reynt nokkrum sinnum að fara uppá Birtu.... mér finnst það viðbjóður, þær eru báðar læður, ég ýti henni alltaf í burtu og stundum ef ég dreg Birtu til mín þá hleypur hin rauninni á eftir, gefst ekki upp fyrr en ég ýti henni í burtu og verð reið, það er ekki búið að taka Jasmín úr sambandi, bara sú yngri og það var fyrir mörgum árum.

Ég var að henda inn nokkrum nýjum myndum.

Kær kveðja, Kisulórur Wink

20.1.2010 | 12:39

Hæ enn á ný Laughing

Læðunum líður vel. Birta Nótt hefur verið mjög kelin undafarið. Þær hafa ekkert verið að fara út enda búið að vera kalt og þær vilja ekki fara út þó það sé bara smá vindur. Jasmín Rós ældi 2-3 sinnum og fyrsta skiptið á sófasettið, Gurrý varð sko ekki ánægð með það. Það er komið nýtt útlit á síðuna en það eru nokkrir dagar síðan það gerðist. Annars er ekkert mikið í fréttum, þær eru núna að hvíla sig hjá Gurrý. Frétti að systir mín sem á Neró og Evu hundana ætlar að selja Evu, hún er bara alltof fjörug og of mikil hvolpalæti og systir mín er núþegar með tvö börn og von á þriðja svo brjálað að gera hjá henni.

Fulltaf myndum hafa komið inn undafarið.

Bless í bili, Krúttlæðurnar.

13.1.2010 | 21:45

Hæ hæ elsku vinir.

Jólatréð var sett upp á sunnudeginum nokkrum dögum fyrir aðfangadag, 20 desember minnir mig. Allir pakkar voru látnir undir tréð á aðfangadagskvöld og kelurófurnar fóru að skoða þá og eins og alltaf þá fann Birta sér góðan og sterkan pakka og lagðist á hann. Þessi jól fengu þær engar jólagjafir og gleymdist að kaupa harfisk handa þeim. Á aðfangadag um kvöldið komu orkuboltarnir Júlía og Óskar ásamt foreldrum sínum og gistu. Á gamlárskvöld gistu þau öll líka og kettirnir voru í felum næstum allt kvöldið svo sást lítið til þeirra.

Gleðileg jól fyrir stuttu og hátíð.
Gleðilegt nýtt ár og þökkum fyrir það liðna.

3/4 mánuðir þangað til Jasmín verður 12 ára !!


Nýárskveðjur, Krúttlæðurnar Kiss

2.1.2010 | 17:00



ágúst '10 | júlí '10 | júní '10 | maí '10 | apríl '10 | mars '10 | febrúar '10 | janúar '10 | desember '09 | nóvember '09 | október '09 | september '09 | júlí '09 | júní '09 | maí '09 | apríl '09 | mars '09 | febrúar '09 | janúar '09 | desember '08 | nóvember '08 | október '08 | september '08 | ágúst '08 | júlí '08 | júní '08 | maí '08 | apríl '08 | mars '08 | febrúar '08 | janúar '08 | desember '07 | nóvember '07 | október '07 | september '07 | ágúst '07 | júlí '07 | júní '07 | maí '07 | apríl '07 | mars '07 | febrúar '07 | janúar '07 | desember '06 | nóvember '06 | október '06 | september '06 | ágúst '06 | júní '06 | maí '06 | apríl '06 | mars '06 | febrúar '06 | janúar '06