Litla prinsessan hún Sirena orðin 2 ára, tíminn fljótur að líða :)

Vorsýningar Kynjakatta eftir nokkra daga, 13. og 14. mars við hliðina á Dýraríkinu í Garðabæ.
Eins og vanalega verða flestar tegundir katta á svæðinu og að sjálfsögðu verður Bangsi og Sirena á svæðinu, sjáumst ;)

28.2.2010 | 12:11
 |  Engin athugasemd

Hæ hæ, annar stór dagur núna :)

Hann á afmæli í dag
hann á afmæli í dag
hann er fjögra ára hann Bangsi
hann er fjögra ára í dag.


Aðrar fréttir eru þær að bæði fengu góða dóma og stigin sín báða dagana á vorsýningu Kynjakatta.
Að auki fékk Bangsi NOM og svo BIS, Best in show á laugardeginum.

Læt þetta duga í bili :)

Kveðja
Siggi, Bangsi og Sirena

26.3.2009 | 11:18
 |  Engin athugasemd

Hæ hæ stór dagur í dag :)

Hún á afmæli í dag
hún á afmæli í dag
hún á afmæli hún Sirena
hún er eins árs í dag.


Já já litla kóðið á heimilinu orðið eins árs og það er svo stutt síðan hún kom til okkar :)

Tvær vikur í sýningu og því þarf að fara að skoða með gardínur og fleira fyrir búrið...........
Vona að sem flestir gefi sér tíma til að líta til okkar í reiðhöll Gusts helgina 14. og 15. mars.

Kv
Bangsi og Sirena

28.2.2009 | 14:38
 |  Engin athugasemd

Jæja, þvílík leti en best að byrja þar sem frá var horfið.

Október: Ferðin suður á sýningu gekk vel þangað til í Hvalfirðinum þegar söngurinn "þrjú hjól undir bílnum" varð óþægilega raunverulegur þar sem eitt dekkið var ekki lengur á felgunni. Eftir að verða næstum því drepinn þarna á þjóðveginum þar sem trukkarnir sleiktu hliðina á bílnum og þá hlið sem dekkið hafði tilheyrt komst varadekkið undir sem var frekar lítið og ræfilslegt undir breyttum jeppanum, því næst lá leiðin niður á skaga til að láta gera við dekkið.
Á leiðarenda komumst við þó seint væri og fórum beint í að setja upp sýningu eftir að kettirnir voru búnir að fá húsaskjól.
Sýningin gekk vonum framar fyrir okkur, Bangsi NOM báða dagana og BIS best in show á laugardeginum og Sirena NOM og BIS báða dagana og að auki uppáhaldsköttur dómar á sunnudeginum enda hvernig er hægt að standast svona prinsessu.
Heimferð, ekki byrjar það vel, dekkið að verða loftlaust og enga hjálp að fá á sunnudagskvöldi........... endaði með því að gista eina nótt í viðbót og komst ekki af stað heim fyrr en um hádegi á mánudag og þá á nýjum dekkjum :)
Alveg að sleppa úr borginni og kominn upp í mosó þegar síminn hringir, þvílík tilviljun einn lítill Ragdoll sem vantar far til Akureyrar og að sjálfsögðu fékk hann far og ég hefði helst viljað eiga þennan fallega seal point strák. Þegar þarna var komið hefði ég getað haldið flotta kattakynningar á leiðinni, 4 kettir sem allir höfðu einhvern tíman unnið BIS á sýningum og 4 tegundir, norskur skógarköttur, Maine coon, Sómali og Ragdoll.
Jólin: það var viss kvíði fyrir því að fara að setja upp jólatré þar sem ekki var vitað hvað litli hvirfilbylurinn Sirena myndi gera, tréð var sett saman (gervitré) og látið standa þannig í nokkra daga bara með seríunni og Sirena lét sig ekki vanta og það svona upp í mitt tré en engin læti nema þegar Bangsi kom og náði í hana því að svona á ekki að gera og hann tekur uppeldishlutverkinu mjög alvarlega og reynir sem hann getur að siða litla orkuboltann og svo þvo hann þegar hann sofnar.
Tréð var svo skreytt 23. des og það þurfti annars lagið að laga nokkrar greinar þannig að þetta slapp til.

Nú er að styttast í sýningu sem er áætluð 14.  og 15. mars og því kominn smá sýningarhugur í fólkið en ég veit ekki með kettina :) Maine coon eigendur virðast ætla að fjölmenna með blíðu risana sína þannig að það verður mjög gaman að hitta og sjá bæði menn og dýr.

Skráningarfrestur er til 16. febrúar fyrir þá sem vilja mæta.

Nokkrar nýjar myndir í albúmunum 2008 og 2009

Læt þetta duga í bili
Siggi og kettirnir :)

1.2.2009 | 00:23
 |  Engin athugasemd
Hæ hæ Langþráðar og marg umbeðnar myndir komnar, breytti nöfnunum á albúunum í ártöl þannig að 2008 er það nýjasta, skrýtiðWink
Héðan er annars allt gott að frétta, Sirena fer stækkandi og komin á pilluna þar sem hún var farin að draga að húsinu óæskilegann háværann félagsskap og bæði það og sennilega lyktin af henni fóru í taugarnar á Bangsa. Vonbiðlarnir komu sér samt fljót í burtu þegar Bangsi kom og sendi þeim sónin, því að það ber að veita þeim stærri smá virðingu þar sem annað getur reynst hættulegt. Litla sæta prinsessan á sem sagt stórann loðinn lífvörð sem leyfir enga stæla !
Og talandi um eitthvað loðið, Bangsi er að verða síðhærðari með aldrinum held ég og ef hann heldur því áfram mun hann nálgast pabba sinn í feldsídd en hann var sennilega loðnasti Maine coon sem hér hefur verið og einn sá glæsilegasti. Þessu fylgir meiri feldhirða og stundum hef ég það á tilfinningunni að ég sé að eiga við stórann "vakandi" persa en ekki Maine coon þegar ég er að baða og þurrka hann.
Við fórum í húsbíla ferð í júlí með báða kettina, Bangsi var ekkert vandamál enda bæði vanur og fer ekki út úr bílnum nema að enginn sé á ferðinni fyrir utan en Sirena ......... úffffff háll sem áll og náði hvað eftir annað að koma sér úr öryggisbeltinu og ef hún var laus þá varð að finna hana og halda í áður en hurð var opnuð þannig að nokkrum sinnum lá við að við misstum hana út. Hún hefði kannski ekki farið langt en maður veit aldrei og því miður hafa kettir týndst á ferðalegi með fjöldskyldu sinni og ekki fundist aftur. Eins og vanalega var ég með fyrstu mönnum að senda inn skráningu á haustsýningar Kynjakatta og í þetta sinn fyrir tvo ketti, það er kannski ein leiðin til að tryggja nægan fjölda katta á sýningar að við sem alltaf mætum komi með fleiri kettiTongue out

Haustsýningar Kynjakatta verða 11. og 12. október í reiðhöll Gusts, Álalind Kópavogi og verður sýningin á laugardeginum númer 50 hjá félaginu og því eitthvað gert í því tilefni. Til stendur að reyna að halda 160 katta sýningu og eru nú þegar skráðir um 100 kettir og skráningarfresturinn rennur út fimmtudaginn 11. september. Sölubásar verða eins og vanalega og hvet ég kattaeigendur að koma og gera góð innkaup í mat, sandi o.fl. tengdu kattarhaldi.


Kveð í bili og vonast til að sjá ykkur sem flest í október hvort sem þið verðið sýnendur eða gestirWink
Siggi, Bangsi og Sirena.
4.9.2008 | 21:52
 |  Engin athugasemd
Hæ hæ

Þá er ég Goðheima Sirena loksins komin norður á Akureyri og er að koma mér fyrir á heimili Bangsa.
Ég varð fyrir smá áfalli fyrst þegar ég hitti Bangsa því þetta tröll er köttur og ég er ekki vön að leika mér við ketti sem eru það stórir og þungir að stór húsgögn hreyfast úr stað þegar þeir ferðast um í flýti.

Af bræðrum mínum er það að frétta að þeir eru allir komnir á góð heimili.
Bílferðin norður gekk vel þannig að húsbílaferðir í sumar og ferðir suður á sýningar ættu ekki að verða neitt vandamál.
Í fyrstu borðaði ég lítið sem ekkert á mínu nýja heimili en núna þegar þriðji dagurinn er að kvöldi kominn er ég farin að borða allt sem tönn á festir, búin að læra á vatnsbrunninn hans Bangsa og er bara búin að koma mér vel fyrir.
Það væri synd að segja að ég kunni mér hóf sem kelirófa og kem ég malandi og þæfi allt og alla dag sem nótt með stuttum svefnhléum þannig að eitthvað er lítill svefnfriðurinn fyrir mér :) og ekki þíðir að loka á mig hurðinni því þá mundi Bangsi öskra úr sér lungun því að hann þolir ekki lokaðar hurðir he he.

Kveðja
Sirena

Hæ hæ Bangsi hér :)

Af mér er allt gott að frétta, það er komin til mín lítil kisa og ætli hún fari ekki að fara heim til sín fljótlega eins og allir hinir kettirnir sem hingað hafa komið, ef ekki þá er það í lagi og hún er bara ágæt þegar hún sefur :)
Hún er að mestu hætt að kvæsa á mig en hún eins og aðrir kettir eru ekki að skilja það að ég er ósköp lítil sál með kettlingshjarta en í stórum líkama.

Það voru settar eitthvað af nýjum myndum af mér í albúmin þriðja og fjórða ár Bangsa og svo líka myndir af okkur Sirenu í albúmið hennar.

Kveð í bili
Eagel Storm Bangsi
4.6.2008 | 22:49
 |  Engin athugasemd
Hæ hæ

Ég heiti Goðheima Sirena og er ný hér á dýralandi en fæ að deila síðu með tilvonandi vini mínum honum Eagel Storm Bangsa.
Sómalinn Max Refur úr Geysi er pabbi minn og Abyssinian læðan Suri úr Geysi er mamma mín en þau eru í eigu Goðheima kattaræktunar og því heitum við systkinin öll Goðheima eitthvað :)

Við erum fjögur systkinin og erum öll nema Herakles seld og búið að finna okkur nýtt heimili þegar við verðum þriggja mánaða. Þeir sem hafa áhuga á fallegu ruddy Abyssinian fressi geta skoðað heimasíðu Goðheima

Ég á eitt myndaalbúm hjá Bangsa sem heitir "fyrsta ár Sirenu" og þar voru settar inn nokkrar myndir af mér í dag.


Bangsi veit ekki að það er von á litlum skæruliða en miðað við hvernig hann tók flakkaranum Bóasi þá verður það ekkert vandamál að venja þau saman. Bóas sem týndist í Reykjavík og fannst á Akureyri fjórum dögum síðar dvaldi hjá okkur á þriðja dag áður en hann fékk far suður til eiganda síns og var það vandræðalaust af Bangsa hálfu því að hann er mikið gæðablóð :)
6.4.2008 | 21:11
 |  Engin athugasemd
Hann á afmæli í dag
hann á afmæli í dag
hann á afmæli hann Bangsi
hann á afmæli í dag.

Hann er þriggja ára í dag
hann er þriggja ára í dag
hann er þriggja ára hann Bangsi
hann er þriggja ára í dag.

Hann hefur stækkað í nótt
hann hefur stækkað í nótt
hann hefur stækkað hann Bangsi
hann hefur stækkað í nótt.

Þetta er afmæliskveðja
þetta er afmæliskveðja
þetta er afmæliskveðja
frá okkur til þín.

HÚRRA HÚRRA Til hamingju með afmælið Bangsi okkar.
26.3.2008 | 18:58
 |  Engin athugasemd
Hæhæ
Þá eru vorsýningar Kynjakatta búnar og gengu þær mjög vel þegar loksins náðust yfir 100 kettir á hana. Það er að sjálfsögðu aðeins farið að hugsa um næstu sýningu en þá verð ég sennilega ekki lengur einn í búri því á næstu mánuðum flytur til mín lítil Somali læða (kannski Aby) sem heitir Goðheima Sirena og það eru nú þegar komnar nokkrar myndir af þessari djásn :)

Það styttist í þriggja ára afmælið mitt en ég ætla að vera áfram kettlingur og það verður því heldur betur fjör þegar það kemur kettlingur á heimilið og kannski líka stríð um hver á að sofa hvar í rúminu því að ég verð auðveldlega afbrigðissamur  ef einhver er of nálægt Sigga mínum :)

Það er eitthvað af nýjum myndum

Kv.
Eagel Storm Bangsi
23.3.2008 | 18:02
 |  Engin athugasemd

Hæ hæ og alltof langur tími síðan síðast. Ósk mín í síðustu færslu ætlar greinilega ekki að rætast. Þá var ég að vonast til að það yrði jafn auðvelt að fá ketti á vorsýningar Kynjakatta eins og það var fyrir haustsýningarnar. Núna eru aðeins komnir 68 kettir en það þurfa að vera 120 til að hægt sé að halda sýningarnar . Vorsýningar Kynjakatta eru 8. og 9. mars og skráningarfresturinn á þær er til 11. febrúar þannig að það er ekki eftir neinu að bíða. Nánari upplýsingar eru á vef Kynjakatta www.kynjakettir.is .

Annars er það að frétta af mér að það gekk ágætlega á haustsýningunum og fékk ég góða dóma báða dagana og stigin mín en engin verðlaun. Ég er því orðinn í dag IP eða Alþjóðlegur meistari geldra. Núna er að sjálfsögðu verið að hugsa um vorsýningar og það er músarþema í skreytingunum núna þannig að það er spurning um hvernig á að skreyta búrið. Svona í leiðinni vil ég benda á að það að nokkrar uppfærslur hafa verið á síðu Kynjakatta að undanförnu og meðal annars eru margar skráningar í kettlingalistanum og því hægt að fá ketti af ýmsum tegundum núna. Einnig er verið að uppfæra ræktendalista og ýmislegt fleira þannig að vonandi verður síðan meira lifandi og aðlaðandi í framtíðinni. Kveðja Eagel Storm Bangsi

5.2.2008 | 12:19
 |  Engin athugasemd
Hæ hæ

Héðan er allt gott að frétta og það styttist í kattasýninguna sem verður 13. og 14. október í reiðhöll Gusts.
Á undanförnum sýningum hefur þurft að hafa mikið fyrir því að ná í það minnsta 120 köttum á sýningu en nú voru skráðir 155 kettir án neinna vandræða og það væri óskandi að þetta verði svona framvegis.

Það var verið að bæta við nýjum tengli á forsíðuna því að Persa ræktandin Fjalldrapa ætlar sér að rækta Maine coon líka í framtíðinni.

kveð í bili

Eagel Storm Bangsi
1.10.2007 | 18:17
 |  Engin athugasemd
Hæ hæ

Þá var loksins smá tími til að setja inn nokkrar myndir í albúmin annað árið mitt og þriðja árið mitt.Tongue out

Í sumar er ég búinn að fara í það minnsta þrjár húsbílaferðir og eina jeppaferð og hefur það bara gengið vonum framar. Ég kann nú betur við húsbílinn heldur en jeppan því að það er betra útsýni og minni hreyfing á manni.
Heilsan er góð og því hef ég bara notið þess að vera köttur og sofið, sofið, borðað, sofið, leikið mér, borðað, sofið...................., það er bara notarlegt að vera köttur þegar maður hefur húsaskjól og fullt af fólki að þjóna sérCool

Nú er að styttast í sýninguna sem á að vera 13. og 14. október í reiðhöll Gusts og það er farið að huga að undirbúningi.

Vel á minnst, skráningarfresturinn rennur út í kvöld 13. september.

Kveðja
Eagel Storm Bangsi
13.9.2007 | 21:50
 |  Engin athugasemd

Hæ hæ og langt síðan síðastSurprised Jæja Kynjakattar fólk, nú er kominn tími til að skrá fressið, læðuna, kettlingana eða bara alla kettina á haustsýningu Kynjakatta sem verður 13. og 14. október. Skráningarfrestur er til 13. september en það stendur til að hækka gjaldskrána 4. september þannig að það borgar sig að skrá kettina tímalega núna eða ekki seinna en 3. september. Það þarf líka að skoða ýmislegt í tíma eins hvort ekki sé í lagi með sprautur og örmerki fyrir sýninguna en nánari uppl. eru á síðu Kynjakatta. (www.kynjakettir.is )

Af gefnu tilefni vil ég benda á að ólíkt hundasýningunum þá mega geld dýr koma á kattasýningar og eru þá í samanburði við önnur geld dýr og að blendingar flokkast með góða gamla húskettinum sem húskettir og eru velkomnir á sýningar Kynjakatta en þurfa að vera geldir og skráðir hjá félaginu og eigandinn félagsmaður.

Það er að sjálfsögðu búið að skrá mig, Eagel Storm Bangsa á sýninguna og vonumst við félagarnir til að sjá sem flesta bæði tví- og ferfætta á sýningunni í október.

Nýjar myndir koma á næstunniWink

Kv

Bangsi

 

10.8.2007 | 21:46
 |  Engin athugasemd
Hann á afmæli í dag
hann á afmæli í dag
hann á afmæli hann Bangsi
hann á afmæli í dag.

Hann er tveggja ára í dag
hann er tveggja ára í dag
hann er tveggja ára hann Bangsi
hann er tveggja ára í dag.

Hann hefur stækkað í nótt
hann hefur stækkað í nótt
hann hefur stækkað hann Bangsi
hann hefur stækkað í nótt.

Þetta er afmæliskveðja
þetta er afmæliskveðja
þetta er afmæliskveðja
frá okkur til þín.

HÚRRA HÚRRA Til hamingju með afmælið Bangsi okkar.




Jæja þá er ég orðinn tveggja ára :)
Ég fór á sýningu um daginn og fékk CAPIB stigin mín báða dagana og það var aðal atriðið. Einnig var ég tilnefndur (NOM) sem besti geldingurinn og sem best snyrti hálfsíðhærði kötturinn báða dagana en fékk ekki nein verðlaun í þetta skiptið en tilnefningarnar eru mikill heiður og duga mér alveg. :)
Tvífætti félagi minn var dómþjónn báða dagana og hafði því ekki mikinn tíma til að vera hjá mér en ég hélt honum þá bara vakandi með keli og mali aðfaranótt laugardags og sunnudags :)

Kveð í bili
Eagel Storm Bangsi
26.3.2007 | 09:06
 |  Engin athugasemd
Hæ hæ
Ég óska hér með eftir ca. 100 sjálfboðaliðum, þar að segja köttum til að eyða einni helgi með mér.Laughing
10. og 11. mars á að vera vorsýning Kynjakatta og skráningarfrestur á hana er til 10. febrúar.
Allar upplýsingar um Kynjaketti og sýningarnar má finna á www.kynjakettir.is

Þeir sem ekki koma með ketti á sýninguna eru að sjálfsögðu velkomnir og geta séð þarna flestar ef ekki allar tegundir katta sem til eru á landinu. Einnig eru góð tilboð á mat, sand o.fl á sýningunni.
Opið verður fyrir almenning 10 - 18 báða dagana.

Sjáumst hress, bless bless :)

Eagel Storm Bangsi
31.1.2007 | 14:48
 |  Engin athugasemd



febrúar '10 | mars '09 | febrúar '09 | september '08 | júní '08 | apríl '08 | mars '08 | febrúar '08 | október '07 | september '07 | ágúst '07 | mars '07 | janúar '07 | desember '06 | nóvember '06 | október '06 | september '06 | ágúst '06 | júlí '06 | maí '06 | mars '06 | febrúar '06 | janúar '06