| Velkomin á síðuna okkar |
| Við heitum Rafnkell og Pálína og erum við með Goðheimaræktun. Við eigum tíkina Doppu og rakkann Ýmir sem eru af tegundinni þýskur snögghærður Pointer (Vorsteh). |
|
|
Um okkur:
Hogdalia’s Ýmir
Ýmir er fæddur 15. september 2007. Foreldrar hans eru Poco og Sognexpressen's Dnt Kira
Töfra Swan Dive Doppa
Doppa fæddist 20. mars 2002. Foreldrar hennar eru Altevågen´s Casper og Int Nord Uch NUch SUch IS CH Veidinn's Frv Valdís Víkingafrú.
Við vorum líka með systir hennar Doppu sem hét Móa. Móa lést mánudaginn 13. ágúst 2007 eftir erfið veikindi. Minning hennar lifir í hjörtum okkar.
Töfra Fields Of Gold Móa f. 1. júlí 2004 - d. 13. ágúst 2007.
Um þýskan snögghærðan Pointer Snögghærði Þýski Bendir er greindur, vinalegur og nærgætinn. Hann er mjög háður og tryggur húsbónda sínum en oft hlédrægur og feiminn við ókunnuga. Hann þolir borgarlíf vel ef hann fær næga hreyfingu. Hann er auðveldur í þjálfun. Þýski Bendir hefur mikið þol og hræðist ekki kulda og getur veitt í hvaða landslagi sem er. Fullur af orku, en jafnlyndur og hlýðinn, strangviljugur og getur verið þrjóskur. Þýski bendir er mikið fyrir börn og húsbóndahollur, það gerir hann að góðum félaga.
Uppruni Snögghærði Þýski Bendirinn er uppruninn frá þýskalandi. Talið er að tegundin sé komin af nú útdauða Chien d’Oysel, sem var seinna kallaður Chien de Rêts. Hann var notaður við netfuglaveiðar og fálkaveiðar. Seinna var blóði af líklega, Enskum, Spænskum og Ítölskum bendum bætt við.
Umhirða Regluleg burstun. Hreinsa skal eyru og einnig svæðið undir vörunum. Ef hundurinn fær legubletti skal bera krem á þá staði. Klær eru klipptar eftir þörfum.
Hreyfing Þarf nóg pláss og mikla hreyfing. Hann getur þó aðlagað sig að borgarlífi.
Hæð á herðakamb Rakkar 62 - 66 sm. Tíkur 58 - 63 sm. Þyngd 25 - 32 kg.
|
|
|
|
|
| Þú ert gestur nr. 15150 |