Hjóluðum 14 km. í dag, í 8 stiga hita.

8.3.2010 | 19:52
 |  Engin athugasemd

Fórum með Gunna, Stíg og Ynju í dag. Hundarnir voru að leita mjög vel í leiðindar veðri og gaman að sjá að Ynja gaf opna flokks hundunum lítið eftir. Það flussaðist upp ein rjúpa og var það eina sem við sáum í dag, rjúpan er greinilega farin upp til fjalla og þangað verður við sennilega að fara til að komast í fugl.

6.3.2010 | 20:48
 |  Engin athugasemd

Ekki var fjöður í móanum í dag, rjúpan virðist hverfa í hlýindum og rigningu. Hann var að fara mjög stórt og opið í dag, var ekki alveg nógu ánægður með hann í dag, en skilirðin voru erfið.

5.3.2010 | 21:33
 |  Engin athugasemd

Takk fyrir hamingjuóskirnar, vonandi verður framhald á þessu hjá okkur. Komumst loksins á æfingu, hann var að hlaupa fínt þrátt fyrir blind hríð á köflum. Lentum í einum fugl sem hann náði ekki að staðsetja og missti hann í loftið, fuglinn var búinn að spora stórt svæði og Ýmir búinn að taka stand og leysa upp tvisvar þrisvar sinnum áður en fuglinn fór í loftið án þess að hann tæki eftir því.

3.3.2010 | 20:00
 |  Engin athugasemd

Jæja þá er þessi sýning að baki, gekk vonum framar hjá okkur, hann fékk 1. Excellent, 1. sæti í vinnuhundaflokk, meistaraefni, 3. sæti besti hundur og vara CACIB. Eina sem var sett út á hann var hvað hann er grannur sem ég svosum vissi, við erum náttúrulega búnir að þjálfa duglega. Nú getum við farið að þjálfa á fullu aftur, nú er það næsta markmið 1. einkun á veiðiprófi. Verð að minnast á glæsilegan farandbikar sem við fengum fyrir 1. sætið í vinnuhundaflokk, gefinn af Pétri Alan í minningu Gæfu Berettu.

28.2.2010 | 14:29
 |  Alls eru 3 athugasemdir

Fór aðeins í fyrradag með Ými og Doppu í heiðina svona rétt til að hreyfa þau, enduðum óvart í þremur flottum fuglavinnum. Ætlaði á sýningarþjálfun í kvöld en spáin er slæm svo við verðum heima, er ekki búinn að fara nema einu sinni með hann á sýningarþjálfun. Það verður gaman að sjá hvort rjúpan hellir sér ekki í heiðina þar sem loksins er farið að snjóa.

25.2.2010 | 17:01
 |  Engin athugasemd

Tókum tveggja og hálfstíma göngu í dag, fengum tvær fuglavinnur rétt í restina á göngunni. Vorum að prófa hvílupoka í fyrsta skipti, þetta er algjör snilld, heldur vöðvum heitum á hundinum eftir hlaup og annað og ekki síðra hann er ekki sífellt að reyna að komast út í leit, svo nú get ég étið samlokuna í friði og hann hvílst.

20.2.2010 | 21:28
 |  Engin athugasemd

Fórum á tveggja tíma æfingagöngu í dag, gekk mjög vel, náðum þremur fínum fuglavinnum. Þær kúra sig bara niður í mosan greyin í snjóleysinu, þannig að það var enginn sjónstandur þrátt fyrir að þær séu eins og endurskinsmerki.

16.2.2010 | 18:59
 |  Engin athugasemd

Hjóluðum 14 km. í dag í kulda og trekk.

15.2.2010 | 20:04
 |  Engin athugasemd

Nú þegar er rigning og hlýindi er ekkert annað að gera en að hjóla, hjólaði 14 km. hann lét mig um allt erfiðið, hljóp bara með. Karítas labbaði hring með Doppu, Doppu til mikillar ánægju.

13.2.2010 | 17:02
 |  Engin athugasemd

Fórum á sýningarþjálfun á vegum FHD í gærkvöldi, varð fyrir hálfgerðum vonbrigðum, allt of mikið af hundum á allt of litlu svæði, vonandi verður það skárra næst. Hvolparnir okkar eru þriggja ára í dag úff hvað tíminn líður hratt. Hjóluðum 14 km. í dag og auðvitað rigndi en svosum í lagi það var 7 stiga hiti.

12.2.2010 | 21:52
 |  Engin athugasemd

Takk fyrir hamingjuóskirnar Öddi og Hildur, við vorum grætilega nálægt 1. einkunn en það kemur seinna, enda fullt af prófum framunda eins og sjá má á heimasíðu FHD. Nú eru það sýningarþjálfanir framundan, sú fyrsta á morgun held ég. Hjóluðum 14.km í dag og veðrið eins og það á að vera í maí en ekki febrúar.

10.2.2010 | 17:55
 |  Engin athugasemd

Umsögn dómara um frammistöðu og hæfni hunds í veiðiprófi:

1. Í góðum hliðarvind fer Ýmir í framúrskarandi vinnu, nýtir vind og land vel. Standur, fer viljugur fram en sýnir okkur ekki fugl.
( það var hræ af rjúpu ) innskot frá mér
2. Heldur áfram sömu vinnu. Festir stand langt úti sem makker heiðrar, reisir djarft RUS eftirleitar og sækir útlagða bráð.
3. Í meðvindsleit heldur Ýmir áfram framúrskarandi vinnu, finnst á standi, rjúpu léttir þegar leiðandi kemur að RUS eftirleitar.
4. Ýmir nær sér ekki í samfellda vinnu. Fælir upp fugl í tvígang, rólegur. Ýmir hefur sýnt okkur fallega vinnu í dag sem hann nær
ekki að halda út daginn og hlýtur því verðskuldaða 2 einkunn. kritik 5556 444

Þetta var flottur dagur í frábæru veðri, Ýmir var að standa sig mjög vel, og vonandi verður bara framhald á þessu hjá okkur.

6.2.2010 | 22:14
 |  Engin athugasemd

Tókum sennilega síðustu æfinguna fyrir prófið á laugardaginn, enginn fugl en töluvert um markeringar, ætlaði að æfa hann í sókn eftir uppflug en við látum slag standa.

3.2.2010 | 18:13
 |  Engin athugasemd

Hjóluðum 14 km í dag í blíðskaparveðri.

2.2.2010 | 18:25
 |  Engin athugasemd



mars '10 | febrúar '10 | janúar '10 | desember '09 | nóvember '09 | október '09 | september '09 | ágúst '09 | júní '09 | maí '09 | apríl '09 | mars '09 | febrúar '09 | janúar '09 | desember '08 | október '08 | september '08 | júlí '08 | júní '08 | maí '08 | apríl '08 | mars '08