27.05.08
Laugardagur, hvíld.
Sunnudagur, fórum til Ödda og Nikkí í sækiæfingar, skemmst frá því að segja að þetta misfórst vegna smáfugla í móanum, þannig að það þarf aðeins að bakka í æfingunum.
Mánudagur, hvíld, grenjandi rigning þá nennum við ekki út.
Þriðjudagur, hvíld, hjá hundunum, en ég aðeins að vinna í undirbúningi ársfundar vorsteh deildar.
23.05.08
Fimmtudagur, undirbúningsfundur fyrir ársfund vorsteh deildar : ) það verður auglýst síðar hvenær hann verður.
Föstudagur, hjólaði uppá stapa gekk mjög vel, þau hafa greinilega sofið á þessu og ákveðið að draga kallinn. En það hlaut eitthvað að klikka, hef alltaf haft það bakvið eyrað ef það skildi springa hjá mér þá gæti ég hringt hringt í Pöllu eða tengdó en nú voru þau á króknum í jarðaför JÁ auðvitað sprakk á framan hjá mér rúmlega klukkutíma labb til baka en þetta var ágætis æfing. Leyfði þeim að vera lausum langleiðina, restin var hæl æfing þar sem Ýmir var fínn en gamla þrjósk aðeins að stelast framúr. Kominn með púðurskot í dummy launcherinn sem Palli og Kjartan í Veiðihúsinu redduðu mér og eiga þeir von á sendingu með dummy launcherum og mis sterkum skotum fljótlega.
21.05.08
Sunnudagur, sleppti þeim saman í móann, allt fullt orðið af smáfuglum þannig að þetta varð stutt æfing.
Mánudagur, hjólaður stuttur hringur.
Þriðjudagur, hjólað tjarnir, með sjónum og til baka.
Miðvikudagur, prufaði nýja aðferð hjá okkur, hjólaði hefðbundið uppá stapa setti þar teygju taum á hjólið og lét þau draga mig beint áfram, úffff meira brasið þau ætluðu ekki að skilja það að fara fram fyrir mig og draga en með smá óþolinmæði og raddbeitingu tókst þetta. Hitti Báru, Jón,strákana þeirra tvo,Birtu (labrador),Nótt og Gosa (border collie) á leiðinni heim hjólandi, vantaði bara hundinn Miu (tsjúi).
17.05.08
Miðvikudagur, Hjóluðum hring og komum við hjá Nótt, sakna hennar nú svolítið, afskaplega skemmtileg og geðgóð tík.
Fimmtudagur, hvíld hjá hundunum. Fór á aðalfund HRFÍ kl. 20:00 þar sem meðal annars var verið að kjósa um nýja vorsteh deild og var hún samþykkt með 47 handauppréttingum á móti 2, þannig að núna verður farið á fullt að undirbúa stofnfund sem verður að vera innan mánaðar frá aðalfundi HRFÍ. Það er mín trú og von að þetta komi til með að styrkja okkar glæsilega vorsteh stofn. Einhverjar óánægju raddir heyrðust vegna þess að við kynntum þetta ekki nógu vel fyrir vorsteh eigendum, en það var svo stuttur fyrirvari á þessu og stutt í aðalfund HRFÍ þar sem HRFÍ og vísindaráð HRFÍ þurfti að samþykkja stofnun deildar fyrir aðalfund, en ég vona að þetta komi ekki að sök. Einhverjir töldu að þetta gæti skaðað FHD þar sem vorsteh eigendur eru svo margir og við mundum ganga frá FHD deild dauðri þar sem svo fáir yrðu eftir, en frá mínu sjónarhorni er það alrangt, við munum reyna að ná í meira vorsteh fólk til okkar og kynna þeim fyrir sýningum og prófum sem HRFÍ og FHD halda og vonandi eigum við eftir að eiga góð og ánægjuleg samskipti við bæði HRFÍ og FHD í framtíðinni. Draumurinn minn væri sá að allir í tegundar hópi 7 væru með ræktunardeild og FHD svona miðlæg sem mundi sjá um veiðipróf, námskeið og aðra viðburði.
Föstudagur, aðeins farinn að stækka hjólahringinn, en þar sem hann er enn að stækka fer ég varlega í að hjóla með hann mjög langt. Í dag, fór til Villa að kaupa hundamat kom svo við í Dýraríkinu og ætlaði að kaupa brúnan sýningar taum en viti menn í öllu þessu úrvali var ekki til brúnn sýningar taumur, þetta var svipuð tilfinning og þegar ég fór í Bass Pro í Atlanta þvílíkt vöruúrval en samt ekkert sem mig langaði í. Jæja þá var það Tokyo og í þessari litlu búð var auðvitað til brúnn sýningar taumur, þá get ég farið að æfa sýningar standa og hlaup á fullu. Og annað Bára hringdi í mig í dag til að spyrja mig í hvaða flokk á hundasýningunni hún ætti að skrá Nótt
13.05.08
Laugardagur, vaknaði klukkan 7:00 til að gera mig kláran að fylgja Ödda og Nikkí á veiðipróf. Spennan hjá mér var mikil þar sem þetta er fyrsti hvolpurinn frá okkur sem fer á veiðipróf og ekki átti ég eftir að verða fyrir vonbrigðum. Prófið var haldið á Mosfellsheiðinni fyrir neðan stóra bílastæðið. Dómari var Edgar Henriksen. Fyrsta sleppið byrjaði ekki vel hjá henni vegna makkers, hann elti Nikkí geltandi og smalaði henni til leiðenda og stóð þetta í 5 mínútur sem er alltof langt þarna hefði dómari eða leiðandi átt að grípa fyrr inní en Nikkí þoldi þetta álag og hljóp eins og dómarinn sagði framúrskarandi vel öll sleppin 5, venjulega eru þau 4x15 mín en hún fékk 5x15 mín til að koma henni í fugl. Flottasta sleppið átti hún með Vatnsenda Veru hans Ásgeirs Heiðars sem var rosalega góð líka enda sú tík búinn að landa 5x1 einkunn. Hvorki Nikkí eða Vera náðu einkunn í dag en fengu mjög góða umsögn, skorið hjá Nikkí var 4,5,6,6- 4,4,4
Sunnudagur, annar dagur í prófi, grenjandi rigning og vindur leit ekki vel út og vorum við ekki mjög bjartsýnir ég og Öddi, en létum okkur hafa það. Prófið haldið á Mosfellsheiðinni við girðinguna. Dómari var Guðjón Arinbjarnarson. Nikkí náði fuglavinnu í sínu fyrsta sleppi án reisningar þar sem makker fældi rjúpuna upp áður en Öddi kæmist í að láta Nikkí reisa, svo fylgdi þessu smá elt. Í enda þriðja slepps náði Nikkí fuglavinnu með reisningu og eftirleit og í eftirleitinni og innkalli tilkynni Öddi annan stand dómarinn sagði honum að vinna úr þessu sem og hann gerði, með reisningu, uppflugi ,sest, róleg og skot,uppflugu tvær rjúpur. Það er langt síðan ég hef stokkið jafn hátt af gleði, ekki smá flott vinna hjá Nikkí sem var að lenda í fugl í ca. 8 til 10 skipti á sínum ferli. Innst inni vissi ég að hún var komin með 1. einkunn en maður veit aldrei, en það var mikil gleði þegar dómarinn tilkynnti það að hún hefði hlotið verðskuldaða 1.Einkunn og hefði hlotið heiðursverðlaun ef hún hefði ekki haft á sig elt og 2 fuglavinnur á móti sér. Vera náði 1. Einkunn og heiðursprís með 2 fuglavinnur og engan mínus.
Skorið hjá Nikkí var 5,5,6,6- 4,4,4 . Mér fannst allir hundarnir standa sig betur í dag en í gær.Óskum við Ödda og Helgu innilega til hamingju með Nikkí sem stóð sig frábærlega.Vil ég þakka dómurunum líka sem mér fannst standa sig mjög vel og vera sanngjarnir.Semsagt frábær helgi í góðum félagsskap.
Mánudagur, hjólað í blíðunni.
Í dag, hjólaður hringur.
09.05.08
Miðvikudagur, sækivinna í dag á frosna rjúpu, þurfti að bakka aðeins með æfinguna og láta hann setjast fyrir framan mig og rétta honum rjúpuna. Það þurfti ekki meira lagði hana út á 15 metrum og sótti hann rjúpuna áfallalaust. Ætlaði ekki að fá hann inn aftur hann ætlaði ekki að hætta að leita að rjúpunni úti sem var reyndar komin í plastpoka og inn.
Fimmtudagur, ég,Ýmir, Öddi ogNikkí fórum á Mosfellsheiðina á æfingu þar sem eru ekki nema tveir dagar í próf hjá Nikkí. Eftir fyrsta slepp hittum við Jón Hjaltalín með Óðinn Teitsson. Þetta endaði sem frábær dagur Ýmir og Nikkí með sitthvorar tvær fuglavinnurnar með reisningu, auðvitað voru smá hnokrar en ekkert til að hafa áhyggjur af, semsagt fínn dagur í fínum félagsskap. Mæli reyndar ekki með því að æfa svona stuttu fyrir próf, þegar er próf á laugardegi er ágætt að hafa síðasta dag á þriðjudegi í síðasta lagi miðvikudegi.
Föstudagur, hvíld, núna verða bara hlýðni- og sækiæfingar í sumar, kannski hjólað smá.
05.05.08
Laugardagur, fór á Miðnesheiðina fundum einu sinni tvær sem voru ljónstyggar og tókst ekki að vinna úr. Sáum eina í viðbót en hann kom vitlaust í hana þannig að ekki tókst það þennan daginn.
Sunnudagur, Þórhallur og strákurinn hans komu í heimsókn, þeir voru að athuga hvort það væru komin sílamáfs egg sem hann ætlaði að nota í pönnukökur og fleira en engin voru eggin einungis hreiður. Hvíld hjá Ými í dag.
Mánudagur, hjóluðum niður að tjörnum og með sjónum til baka, það var frekar erfitt að hjóla með Ými núna þar sem hann togaði mig til hliðar og var alveg sama hvað ég reyndi hann fór alltaf til hliðar aftur, jæja gengur vonandi betur næst. Tók svo smá grunnþjálfun
02.05.08
Þriðjudagur, ég og frúin skruppum aðeins á heiðina rétt til að leifa hundunum að hlaupa smá hring Doppa flussaði upp tveimur rjúpum sem settust rétt hjá en ekki tókst okkur að leiða hundana uppí þar sem rjúpan flaug upp áður en við náðum að vinna úr henni, reyndum tvisvar í viðbót án þess að það tækist. Keyrðum fram á rjúpu á vegslóða og reyndi ég að láta Ými ná þessum fugl sem tókst í annarri tilraun, settist fínn í uppfluginu.
Miðvikudagur, hjóluðum niður að tjörnum, lét þau setjast þar og horfa á fugla fánuna í smá tíma hjóluðum svo til baka.
Fimmtudagur, ég, Palla, Beggi, Öddi, Ýmir, Nikkí, Heiða og Óðinn fórum á Mosfellsheiðina á æfingu, og leikar fóru þannig Heiða náði einni góðri fuglavinnu, Nikkí einni mjög góðri, og Óðinn og Ýmir einni flottri saman, svo náði ég einni með Ými með stuttum stand og nokkrum skrefum á eftir þar sem einn hundurinn renndi sér inní fuglavinnuna hans vitlaust í vindinn og allt í loftið.
Föstudagur, ég Öddi, Helga, Doppa,Ýmir og Nikkí fórum í Ósabotnana. Doppa fór frekar rólega af stað en Nikkí eins og venjulega í botni leitaði mjög vel, síðan bætti Doppa verulega í. Sleppti Ými einum og fór hann í fína leit undan vindi, reyndar kom það mér á óvart hvað hann leitaði fínt. Í eitt skiptið kom fugl fljúgandi frá Doppu og Nikkí en við sáum ekki hvað gerðist. Öddi skráði Nikkí á báða veiðiprófsdagana næstu helgi þannig að það verður gengið með
fyrsti hundur úr okkar ræktun á veiðiprófi.