Þá er komið að því, hann Erró er eins árs í dag. Hann hlakkar mikið til að fá túnfisk í kvöldmatinn og svo verður fullt af gestum þar sem það er saumaklúbbur hjá mér í kvöld. Semsagt hann fær bara svaka partý strákurinn. Ég setti inn nokkrar myndir af afmæliskisunni.
Bestu kveðjur til ykkar allra.
Jæja þá eru jólin búin og komnar inn nýjar myndir. Erró var með það á hreinu að jólatréð hafi verið sett upp fyrir hann og engan annan því hann skemmti sér konunglega þar eins og sjá má á myndunum þá leit það ekki vel út. Það hékk uppi yfir áramótin svo þegar ég kom fram um morguninn 2. jan þá lágu jólakúlur útum allt gólf og tréð í henglum, ég ákvað bara að hafa það þannig og Erró og Embla skemmtu sér vel að klifra í því þangað til að það var tekið niður.
Jæja það er orðið langt síðan síðast. Var að setja inn samtíning af myndum síðan í nóv og des. Ég prjónaði á þau rauðar slaufur fyrir jólin svo þau fari nú ekki í jólaköttinn. Setti upp jólatréðð í gær og það stendur enn uppi. Erró er mjög skæður í trénu ég vona að það verði eitthvað eftir af jólakúlum ég reyndi að klemma þær extra vel á greinarnar svo þær detti ekki af. Annars verð ég að sitja við og hekla bara skraut fyrir næstu jól. ég held að Erró haldi að tréð hafi verið sett sérstaklega upp fyrir hann til að klifra í.
Við hjónin skelltum okkur í golfferð til Spánar og að sjálfsögðu var köttur í golfskálanum, líklega til að halda músum í skefjum. Þegar við mættum á morgnana að sækja settin upp í hillu þá var þessi elska komin ofan í nestispokan að sækja skinkuna sem var á samlokunni sem var búið að smyrja í nesti. Svo mjálmaði hann í þvílíkum kvörtunartón eins og hann fengi ekkert að borða. Ég setti inn nokkrar myndir af honum.
Þegar við komum heim var tekið mjög vel á móti undarlega lyktandi ferðatöskum en okkur.
Bestu kveðjur
Ég var að bæta nokkrum útimyndum af Erró í bandinu úti, hann er alveg sáttur við að vera í bandi úti í garði að skottast um svo tókum við ákvörðun um að setja Ask aftur í band því við keyrðum fram á hann að skokka úti á götu eins og ekkert væri sjálfsagðara þannig að Embla fær ein að vera laus enda fer hún ekki neitt í burtu, henni finnst langskemmtilegast að vera að skottast í kringum okkur þegar við erum úti í garði að vinna.
Svo eins og þið sjáið á nokkrum myndum þá þurftum við að fá lánað klóruprikið hjá þeim fyrir inniloftnet þar sem við stöndum í þakviðgerðum og loftnetið var tekið niður, eins og sést þá truflaði það ekki kettina að liggja þar.
Í gær þann 4. júlí átti hann Markús sonur minn 21 árs afmæli og bauð nokkrum vinum heim, Skotta leit við og fannst greinilega eitthvað lítið vera boðið uppá af mat þannig að hún skellti sér út aftur og náði í mús sem hún vildi bjóða uppá við litla hrifningu okkar.
En í dag eiga Askur og Embla 2ja ára afmæli. Af þeim er allt gott að frétta og Erró líka, hann er alveg óður að komast út þegar Aski og Emblu er hleypt út svo ég set hann í band, hann er ekki par kátur með það og lætur öllu illum látum á meðan verið er að koma ólinni á hann en eftir það er allt í lagi og hann hendist út á eftir þeim.
Bið að heilsa í bili
Askur greyið fékk sýkingu í annað augað á fimmtudaginn svo við þurftum að fara upp á dýraspítala og fá krem sem ég set tvisvar á dag í augað á honum, hann er svo stilltur á meðan. Það lekur ekki lengur neinn gröftur úr auganu á honum eins og var fyrst en það er samt svolítið bólgið ennþá.
Og Erró tókst að skemma blóm sem ég á, þetta er benjaminficus. Erró var að stökkva upp á glervegg sem aðskilur stofu og eldhús en stökk aðeins of langt og flaug yfir vegginn og endaði í blóminu sem er nokkuð stórt og var flott en nú vantar helminginn á það því hann braut eina stóra grein af. sem betur fer meiddi hann sig ekki neitt og hélt áfram að leika sér eins og ekkert hefði gerst.
Bless í bili.
Aldeilis búið að vera gott veður í dag þannig aða Askur og Embla voru alveg friðlaus þangað til ég hleypti þeim út. þá birtist nágranninn og eitraði hekkið yfir alla lengjuna og ég þorði ekki annað en að fá þau inn aftur og skellti þeim í bað. Askur alltaf jafn stilltur í baðinu Erró fékk líka sitt fyrsta bað og var bara nokkuð góður, en Embla var sko ekki sátt og náði að setja klærnar dálítið vel í lærið á mér enda á maður ekki að baða kisur á bikini ;o). Núna skilja þau ekkert í því að hafa verið lokuð inni í allan dag greyin en vona bara að það fari að rigna svo eitrið þynnist út, ég tek enga sjensa með þau.
En bless í bili.
Jæja nú er komin tími til að kynna nýjan meðlim í kattafjölskylduna hann Erró, hann kemur úr Kolsholti og er algjört æði. Köttunum semur yfirleitt vel. Erró er mikið fyrir að slást og þá eru mikil læti sérstaklega ef að Embla á í hlut, hún þolir ekki þegar hann ræðst á hana og hvæsir og urrar á hann og leggur svo á flótta og Erró á eftir. Askur tekur í hann á móti í smástund svo flýr hann uppá baðinnréttingu. Skotta lætur hann finna fyrir því, það er nú einu sinni hún sem er elst. Það er ekki hægt að neita því að heimilislífið hafi breyst þegar Erró kom, Askur og Embla horfa oft á hann alveg undrandi hvað hann getur hamast mikið í kisutjaldinu það er eiginlega að verða ónýtt eftir hann, það bjargar alveg húsgögnum að hafa svona tjald ekki spurning.
Erró er mjög forvitinn og smakkar á flest öllu sem er í matinn. Hann át gúrkusneið af brauðinu mínu, náði í 3 spirulinatöflur og át þær, kemur iðulega og fær sér með mér möndlumjólk og musli og svo er hann til vandræða í kvöldmatartímanum nema að maður passi að hann fái kattarmatinn á sama tíma.
Hann er líka mjög ljúfur og mikill kúruköttur, malar út í eitt og á það til að spjalla heilmikið.
Hann er líka mjög hjálpsamur við heimilisstörfin, hjálpa til við að elda, þá situr hann á öxlinni á mér og fylgist vel með að allt sé rétt gert og eins við þrif þá hangir hann á moppunni og þeytir rykinu út um allt þannig að það er óhætt að segja að hann sé mikil hjálparhella blessaður.
En nú er þetta gott í bili set inn fleiri myndir af þeim seinna.
Nú er aldeilis búið að vera gott veður Embla alveg óð að komast út, hún hleypur að útidyrahurðinni og garðhurðinni til skiptis og mjálmar eins og hún sé á launum við það, svo við leyfðum henni að skottast hér um garðana, hún fer nú ekkert lengra en það, svo kemur hún alltaf til baka eftir smá stund og tékka hvort það sé ekki örugglega einhver til þess að opna fyrir henni. Svo á kvöldin þá er hún alveg örþreytt og sefur eins og klessa í bælinu sínu, Askur fékk að hlaupa laus i dag annars hefur hann bara farið út í bandi, hann fer ekkert ef við erum ekki að elta hann, þessi útivist hefur alveg farið með hann líka og hann liggur uppá baðinnréttingu steinsofandi. Ef Skotta veit af þeim úti þá er hún með að sjálfsögðu að fylgjast með að þau fari ekki of langt. Set inn myndir af þeim fljótlega.
Bless í bili
Jæja þá er enn einni kattasýningu lokið. Ekki rökuðum við að okkur neinum verðlaunum en Askur fékk 1 stig í viðbót upp í meistara og er þá komin með tvö stig, Embla fékk stig báða dagana og er líka komin með tvö stig. Þetta var mjög skemmtileg helgi og sýningin haldin í miklu betra húsnæði en áður. Ég get ekki sagt að þau Askur og Embla hafi skemmt sér neitt sérstaklega vel, held reyndar að þeim finnist þetta einstaklega leiðinlegt og verið frekar fegin að komast heim. Ég er búin að setja inn myndirnar sem teknar voru á sýningunni eins og sést er myndavélin ekk ofnotuð eftir helgina enda nýja fína vélin í viðgerð.
Bið að heilsa í bili.
Rosalega er tíminn fljótur að líða og svakalega langt síðan ég hef sett stafkrók hér inn.
En best að bæta aðeins úr því. Það hefur svo sem ekki mikið gerst síðan síðast annað en að Skotta er að verða ansi þung á sér, orðin alltof feit greyið og löt að vera úti, fer þá helst á næturnar og labbar yfir hausinn á mér til þess að vekja mig og fá mig til að opna gluggann svo krafsar hún í gluggann aftur þegar hún vill komast inn, þetta gerist oft á nóttu. Svo er hún svaka spræk á morgnana en ekki Askur og Embla svo hún ræðst á þau og vill fara í smá eltingaleik, þau flýja oftast upp á innréttingu og leggjast þar.
Nú eftir að það fór að birta svona og sólin að skína þá vælir Embla annarslagið við útidyrnar og vill komast út, henni tekst það yfirleitt í hvert skipti þegar einhver kemur inn þá kemur hún á fljúgandi ferð og það er ekki sjéns að stoppa hana, Skotta fer svo á eftir henni að fylgjast með að hún fari ekki neitt langt, yfirleitt hoppar hún um allt á stéttinni fyrir framan eða fer í næstu garða og mjálmar þar og vill alls ekki koma inn, það tekst bara með því að gefa henni kisunammi. Askur sækir ekki eins mikið í það að fara út, hann situr úti í glugga og fylgist spenntur með systur sinni.
Við ætlum á næstu sýningu sem er 14.og 15. mars, við hlökkum mikið til þess og ég er byrjuð að sauma nýjar gardínur fyrir búrið.
Ég var að setja inn nýjar myndir af kisunum.
Bið að heilsa ykkur sem hafið kvartað mest yfir letinni í mér.
Jæja ég tók mig til og viktaði liðið áðan. Embla léttust 2,6 kg, Askur 4 kg og Skotta feitabolla er 5,3 kg hún þyrfti nú smá aðhald en það er frekar erfitt þegar Embla þykir of létt svo megrunarfæðið fær aðeins að bíða. Varð bara að skella þessu hérna inn þegar ég sá að Guðrún var búin að vikta Engil bróður þeirra.
Bless í bili
Embla fór í ófrjósemisaðgerð í morgun, hún mjálmaði alla leiðina upp á dýraspítala og ég hef varla heyrt hana mjálma síðan ég fékk hana fyrir ári síðan. Núna á hún voðalega bágt og sefur í hitanum á baðgólfinu. Hún kemur annarslagið fram og er þá eins og hún sé sauðdrukkin og er eiginlega hálf hættuleg sjálfri sér að reyna að príla eða stökkva upp á sófa bakið eða klóruprikið. Vona að hún jafni sig fljótlega á þessu öllu saman.
bless í bili
Jæja þá er rosalega skemmtilegri kattarsýningarhelgi lokið þar sem voru 170 kettir þannig að það var nóg af köttum af öllum stærðum og gerðum að skoða. Askur og Embla náðu bæði í sín fyrstu stig og Askur var valinn best snyrti stutthærði kötturinn og ég er mjög montin að hafa fengið þau verðlaun. ég er búin að setja inn eitthvað af myndum frá sýningunni og sendi svo myndir af annara köttum til eigendanna sem geta þá byrt þær á sinni heimasíðu ef þeir hafa. Endilega kvitta svo í gestabókina, bless í bili.