Ég var nú ekki mjög kát í morgun þegar ég vaknaði og sá að nýprjónaða lopapeysan sem var til þerris á baðgólfinu var ónýt. Askur var búin að tæta hana það mikið að það er ekki nokkur leið að laga hana, svo nú verður maður bara að setjast niður og prjóna aðra. Ég hefði svo sem mátt vita það að hann gæti ekki látið peysuna í friði þar sem hann var búinn að tæta tvær dokkur í frumeindir sem áttu að fara í peysuna.  Þau sækja bæði mjög mikið í að vera inni á baði þessa dagana því það er hiti í gólfinu og þau fíla það alveg í ræmur, liggja þar á mottu eða handklæði og sofa.

Saumaskapurinn á gardínunum í nýja búrið gengur bara ágætlega og svo er ég með mann í vinnu við að útfæra hillu í búrið sem ég vona að heppnist vel.

bless í bili

24.9.2008 | 14:45
 |  Engin athugasemd

Góða kvöldið

Ég setti inn nokkrar myndir af snilldarhugmynd (mér finnst það allavegana) sem ég fékk, að klæða hliðarnar á búrinu fyrir sýninguna svo ekki sjáist yfir í næsta búr því kettirnir geta troðið sér bakvið gardínurnar. Þetta er bara poki sem ég saumaði úr óbleiktu lérefti og klæði hliðarnar í og svo verða gardínur settar inn í búrið þannig að þetta sést ekkert.

bless í bili og endilega kvitta í gestabókina.

16.9.2008 | 20:38
 |  Engin athugasemd



ágúst '10 | júlí '10 | maí '10 | febrúar '10 | janúar '10 | desember '09 | október '09 | júlí '09 | júní '09 | maí '09 | apríl '09 | mars '09 | febrúar '09 | október '08 | september '08 | ágúst '08 | júlí '08 | júní '08 | maí '08 | apríl '08 | mars '08