Jæja smá fréttir en hér er búið að skrá 3 kisur á marssýninguna hjá Kynjaköttum. Það eru þau Fjalldrapa Aisa, Fjalldrapa Brandur og Eagle-storm F. Pandora. Sýningin er er dagana 13.og 14. mars og erum við að verða bara dálítið spennt að bíða.
uppgjör ársins.
Á októbersýningu gekk bæði Brandi og Ásu vel á sýningu komu heim með frábæra dóma og við mjög sátt.

Brandur fékk nokkrar rósettur

Ása fékk að sjálfsögðu líka rósettur og frábæra dóma.
Mikið er búið að vera um gestakisur á heimilinu á árinu og þá að sjálfsögðu aðalega læður sem hafa verið að heimsækja Brand. Hann eignaðist á þessu ári 15 börn. 8 með Bínu og 7 með Lante.
Saffie kom í heimsókn og ef allt gengur eftir þá koma kettlingar í byrjun janúar. Saga kom líka í heimsókn og vonum við að hún komi með kettlinga í byrjun febrúar. Kodou og Jojo eru hérna hjá okkur og fer Kodou heim til sín á annan í jólum en Jojo ætlar að vera áfram.

Rebbi kom til okkar og var hjá okkur í rúman mánuð. Bara yndislegur kisi.

Og Pandora sem við köllum í daglegu tali Dóru kom hérna til okkar um miðjan nóvember og er bara yndislegust. Hún verður gæludýr hér á heimilinu til stóð að rækta undan henni en ég tók ákvörðun um að það verður ekki gert og fer hún í geldingu með hækkandi sól. Hún er ekkert annað en gleðigjafi, hleypir miklu lífi í hópinn sem fyrir er.

Í byrjun desember flutti svo Coco hálfsystir Dóru hingað á Siglufjörð til þeirra Guðmundar og Birnu og ættleiddu þau hana Lilly (persalæðu) þannig að það fækkaði um einn hjá mér. Sú sambúð gengur vel og Lilly bara ydnislegust, enda fyrirfinnst varla meiri keleríisbolti á þessari jörð.

Kisurnar á Suðurgötu 55 óska öllum kisum nær og fjær Gleðilegra Jóla !!
Kettlingarnir hennar Bínu alveg Springa út og eru þvílíkt flottir og náði ég mynd af henni Pandoru sem er orðin svoooo flott ;)

Jæja þá er ég búin að fara til Fjalldrapa Kattarrækt og kíkja á litlu gullmolana hjá Lante og Brandi og vá þau eru bara æðisleg... 7 maine coon kettlingar fæddust 8. september. Skiptingin er að þetta eru 4 högnar og 3 læður. og 2 hefðbundnir bröndóttir og 5 silfur.

Nú tekin var sú ákvörðun um að fóstra 2 eðalskvísur sem koma til með að búa hérna hjá okkur á Sigló. En það eru þær Lovely og Lilac. Lilly er komin til okkar og er hún ekkert nema dásamleg.

Þetta er Fjalldrapa fantacia Lilac Lust. fædd 25. júní 2005 sem kölluð er bara Lilly. Hún er PKD neikvæð. Við erum komin með hana hérna heim og er hún endalaust kelin og fellur alveg inn í hópinn okkar.

Þetta er hún ch. The Happy Syster Isn't She Lovely og er hún bara kölluð Lovely. Hún er fædd 5. mars 2004 og er pkd neikvæð.
Þetta eru sem sé Persamæðgur og fannst okkur tilvalið að slá til þar sem Droppy dóttir Lovelyar og systir Lillyar er í okkar fjölskyldu. Droppy er búsett á Akureyri hjá foreldrum mínum. Við erum svakalega ánægð með þessa viðbót
Hér er búið að skrá kisur á kattarsýninguna 10. og 11. október það eru þau Fjalldrapa Brandur og Fjalldrapa Aisa (Ása) Svo næsta mál á dagskrá er að veðrið verði til friðs svo maður komist nú suður á sýningu ;) Hlakka til að sjá allt kattarfólkið.

Ps. Fjalldrapa Simbi er svakalega ánægður með þessar flottu skvísur sem hann er búin að fá hér á heimilið ;)
Kveðja Rósa og kisurnar.
Jæja skrapp til Keflavíkur að kíkja á litlu börnin Brands og Bínu og þau eru nátturulega alveg guðdómlega falleg. Farið var víða og er ég búin að setja inn myndir úr ferðinni þar sem fjölmargir kisueigendur voru sóttir heim og þakka ég kærlega fyrir mig þetta var mjög gaman.

Við erum búin að ákveða að ættleiða Eagel-storm F. Pandoru og kemur hún í lok október til okkar. Svo nú tekur við bið sem verður vonandi fljót að líða 
En ég er búin að skrá Fjalldrapa Ásu og Fjalldrpa Brand á kynjakattasýninguna sem haldin er helgina 10.-11. október. Þannig að ég fæ að sjá Pandoru aftur svona hálfum mánuði áður en hún flytur til okkar.
Enn er mikil sorg yfir Lukkumissinum en Ásan okkar er hætt að hlaupa hér kallandi um húsið. En við eigum bara frábærar minningar um hana. Fengum að hafa Jojo áfram og verður hún svo bara samferða okkur á sýninguna.
Kveðjur frá Sigló Rósa og kisurnar og hundastelpan Perla
Sá sorglegi atburður átti sér stað að Lukkan lést föstudagskvöldið 21. ágúst klukkan 21.00
Hún var búin að vera flogaveik í allt sumar. Við trúum að nú sé hún komin á betri stað 

Hennar er sárt saknað 
Jæja hérna á Siglufirði gengur allt sitt vana gang og mikið búið að vera um að vera í sumar !!
Skemmst er frá því að segja að Brandur og Bína eru búin að eignast þessi líka svakalega flottu kisubörn og eru það 8 heilbrigðir maine coonar. 5 fressar og 3 læður.
Og bara þó nokkuð um kisuheimsóknir eða amk kisufólk.
Um verslunarmannahelgina fengum við alveg magnaða heimsókn og það voru þau Bangsi og Sírena og að sjálfsögðu kom tvífætlingar með þeim... Siggi, Lilja og Jóhanna ;)
Vigdís og Sveinn kíkkuðu á okkur og Helga og Kári þó að Helga og Kári séu nú alltaf annað slagið að kíkka hér við. Bara gaman að fá alla í einu !!!!
Nú Röggi og Þórunn komu svo hér helgina á eftir eða pæjumótshelgina og ekki var síður skemmtilegt að fá þau. Alltaf gaman að bera saman bækur sínar og fá upplýsingar frá öðrum ;)
Læt þetta duga af fréttum í bili.
Bara allt að gerast þessa dagana...
Bínan okkar er farin suður í Fjalldrapa ræktun og kemur hún til með að eiga núna næstu daga þar sem hún er að verða komin á tíma eða 60 dagar í dag ;)) Verður gaman að fylgjast með börnunum hans Brands í framtíðinni ;))
Lante er hérna hjá okkur ennþá og ekkert að ske hjá henni ;))) þannig að hún verður bara áfram hérna hjá okkur ;)) En það fer nú ekkert fyrir henni og hún er alveg magnaður karakter svo kelin og blíð og góð... Verður bara gaman að hafa hana lengur ;)
Kisurnar fengu hérna útibúr og finnst þeim það algjört æði að komast aðeins hérna út fyrir ;)
Minning !!!
Nói kisinn okkar lést klukkan 2 í nótt :( Erfið nótt en búið er að koma honum fyrir og smíða kross þannig að nú er þessi kisustrákur okkar með upphringaða skottið að leika sér við Lúkas bróðir sinn.

Vonandi urðu fagnaðarfundir hjá þeim :)
Jæja smá fréttir !!
En þannig var að við fórum á sýninguna í mars og mættum þar báða dagana !
Þetta var að sjálfsögðu mjög skemmtilegt og fengu þau öll mjög góða dóma. Brandur varð Biv á sunnudeginum og Simbi var valin uppáhaldsköttur dómara á laugardeginum Ása fékk líka mjög góða dóma þrátt fyrir kúluna á bakinu.
En Sigga Tóta hjá Fjalldrapa og Sigríður Þóra hjá Eagel-storm sendu mig með sitthvora læðuna frá sitthvorri ræktuninni hingað til Siglufjarðar og á að reyna að para Brandinn við þær þar sem hann er mjög stór og grófur og það er það sem við viljum reyna að fá grófa og stóra ketti....
Nú ef vel gengur þá verða þær kannski farnar suður aftur í sumar eða haust og þá vonandi kettlingafullar :) Kemur í ljós með vorinu hvort þetta tekst. Allavega er Bína byrjuð að breima og Brandur sýnir henni mikinn áhuga og er að reyna en kannski ekki hægt að ætlast til að það verði neitt úr þessu þar sem hann verður 8 mánaða í þessum mánuði. En þær verða þá bara fram á haustið hjá mér og þá er nú pottþétt að hann verður komin með það sem til þarf.
En þær Lante og Bína læðurnar sem ég kom með eru nú alveg einstakar svo ljúfar og blíðar og eru alveg einstaklega fljótar að aðlagast hópnum. Tók ekki nema 2 vikur fyrir þær og svo hin dýrin okkar að verða vinir :) Og nú kúra bara allir saman og ekkert vesen. Hafði smá áhyggjur þar sem Perla er orðin svo gömul og vissi ekki alveg hvernig fullorðin dýr mundu bregðast við en að sjálfsögðu hefur það gengið svakalega vel... þær eru báðar búnar að hitta Perluna og Perlan leyfir þeim bara að skoða sig og ekkert mál... bara ákveðin virðing í gangi samkvæmt lögmálum náttúrunnar ;)
En nóg í bili... læt svo vita hvernig gengur ;)
Fjalldrapa Once Where A Warrior

Jæja... smá fréttir...
En þannig er mál með vexti að þessi Persakrúttpungur ætlar að eiga heima hérna hjá okkur og erum við afskaplega ánægð með kauðann...
Heimir Þór Jósteinsson er eigandinn af honum og er hann gjörsamlega alveg búin að bærða alla hér á heimilinu menn og dýr.... ég sem hélt að ég nennti nú ekki alveg svona nostri eins og alvöru kembingu og hreinsa augun og þess háttar en þetta er nú bara alveg ótrúlega gaman. Svo skemmir ekki að Lukkan okkar heldur að lífið gangi út á eintóma alsælu... eignar sér hér alla kettlinga sem koma á heimilið og þarf ekkert að hafa fyrir meðgöngunni eða neitt en hún er ótrúleg mamma.... en þar sem hún greyið fær nú ekki að eiga kettlinga þá er þetta ágætislending. En Simbi kemur með okkur á sýninguna.
Þá er búið að skrá þessa hreinræktuðu ketti á heimilinu
á sýningu hjá kynjaköttum

Að sjálfsögðu erum við farin að hlakka mikið til og nú verður ennþá meira gaman svona af því að maður veit núna aðeins meira út á hvað þetta gengur ! Svo verður nú gaman að hitta líka fólkið sem við kynntumst á síðustu sýningu og alla þessa flottu ketti... en þeir voru jú ansi margir flottir.

Við keyptum okkur búr þannig að þau verða í sínu eigin búri og svo er náttúrulega byrjuð gríðarleg hönnunarvinna í sambandi við þemað..en þemað að þessu sinni er Kærleiksþema, hjarta ást og hamingja.. Opið er fyrir gesti frá kl. 10:00 til 17:30 báða dagana. Aðgangseyrir er 800 kr. fyrir 15 ára og eldri, 400 kr. fyrir börn 7 til 14 ára og frítt er fyrir börn 6 ára og yngri í fylgd með fullorðnum.

Já svona dálítið langir og strangir dagar en alveg þess virði að vera með. En um að gera að leyta sér upplýsinga á kynjakattar síðunni ef fólk er á ferðinni og mæta nú á þessa frábæru sýningu..
Líka gaman að vera búin að fara á svona sýningu sérstaklega ef fólk er í kattarhugleiðingum... reyndar held ég að þá verði sko ekki til baka snúið... maður verður alveg veikur innan um þessi flottu dýr...

Læt svo vita eftir sýningu hvernig okkur gekk...
en hef nú ekki miklar áhyggjur þar sem við erum þarna aðalega til að vera með
Smá fréttir á nýju ári !!
Jæja árið 2009 gekk í garð og það þótti nú ekkert tiltökumál hér á heimilinu þó svo að hér væri skotið upp flugeldum og kettirnir frekar rólegir. Perla var líka með rólegasta móti þar sem það var nú ekki svo mikið skotið upp svona fyrir gamlaárskvöld og síðan var mesta skotrhríðin búin rétt um 1 eftir miðnætti.
Heilsufar dýranna hefur verið með besta móti og verð að viðurkenna að þetta fóður sem við settum Perlu á er alveg að virka. Hún hefur ekkert haltrað í allan vetur og virðist bara vera miklu hressari. Við skiptum yfir í J/D fóður frá Hills.. sem er sérstakt gigtarfóður. Ótrúlegur munur á skvísunni.
Við skelltum okkur á Akureyri fyrstu helgina á þessu nýja ári og heimsóttu allar kisurnar í vestursíðunni og á meðan við stoppuðum hjá Nonna afa og Ásu ömmu vorum við 8 kisur sem lifðum í sátt og samlyndi og ekkert mál að skreppa svona nokkra daga í heimsókn.
Já og nokkrar urðu heimsóknirnar á Akureyrinni.. Byrjuðum á að kíkja við hjá dýralækninum okkar henni Elfu á dýraspítalanum hennar og hún var nú rosalega hrifin af Ásu og Brandi. Hún setti á heimasíðuna fréttir af heimsókninni þar sem við vorum nú líka rosalega góð á meðan við stoppuðum. En á síðustu sýningu þá var sett út á kúlu á bakinu hennar Ásu og hefur hún orðið fyrir hnjaski á hryggnum og er þessi kúla ekkert sem þarf að hafa áhyggjur af. Þetta háir henni ekkert þannig að hún kemur til með að lifa góðu lífi með þessa kúlu á bakinu sem kemur nú sennilega til með að minnka og er þegar byrjuð að minnka. Þannig að Ása heldur áfram að fara á sýningar.
Seinni part laugardagsins renndum við í heimsókn með Brandinn til hálfbróðurs Ásu og systir hans Brands en það eru þau Stormur og Villimey. að sjálfsögðu skemmti hann sér vel með þeim. Tókum að sjálfsögðu slatta af myndum sem eru komnar í albúm.
Á sunnudeginum fórum við í heimsókn til Bangsa og Sírenu þar sem skemmtunin hélt bara áfram. Brandur varð síðan voða þreyttur og fékk að kúra í rúminu hennar Jóhönnu ohh það var nú bara best... já honum finnst ennþá voða gott að kúra hjá okkur og ég held að hann verði bara kelnari eftir því sem hann eldist.
Á þessu ári verður Perlan okkar 11 ára... Nói verður 2 ára. Lukka verður 2 ára Ása verður 1 árs núna í mars og Brandurinn verður 5 mánaða núna 19. janúar og býst ég nú fastlega við því að þá verði opnuð túnfiskdós svona í tilefni dagsins.
Brandur 4ra mánaða í dag...
Jæja þá er kappinn okkar akkúrat 4ra mánaða í dag hann er sem sé fæddur 19. ágúst !! Skellti honum á tölvuvigt í gær og hann er 3.1 kíló.. bara ansi mikill bolti. Ása er rétt um 5 kíló en það gengur samt ekkert að fita hana held að þetta fari allt í hæðina og lengdina en skvísan er fædd 9. mars og er því rúmlega 9 mánaða. Lukkan er bara eins og fis og tekur nú varla tali með að segja hvað hún er þung en hún er 2,5 kíló og Nói 3,5 þannig að Brandur er að sækja hratt á Nóa sinn þessa dagana. Nói er svoooo góður við strákinn sinn og Brandur sækir nú ansi mikið í að kúra hjá kappanum. Brandur gafst upp á að kúra hjá Lukku þar sem hún hefur verið að naga á honum veiðihárin til að gera hann háðan sér... en svo fékk hann nóg og nú kúrir hann bara hjá Nóa. Á nóttunni kúrir hann samt hjá okkur og er þá þvílíkt kelin og grrrr malið í honum er alveg himneskt.. Hann hefur greinilega fengið þetta frá pabba sínum en hann er svona kelin og þvílíkt heitur. Ég bíð alltaf eftir að eitthvað komi upp á en sem betur fer eru hér allir vinir við höfum ekki mikið þurft að skipta okkur af slagsmálum eða þessháttar. Einstöku sinnum hefur heyrst í Lukku en það er vegna þess að Ása verður soddan skessa í leik og þá endar það stundum með því að það heyrist í Lukku en þá stoppar Ásan.
Erum byrjuð á jólabaðinu og er Perla búin. Síðan ætla ég að klippa klær í dag og svo verður alsherjar böðun um helgina... tek slatta af myndum þar sem þau verða svo flott þegar búið er að baða. Allavega verður Ása alveg svakalega flott. Keypti Furminator sjampo og næringu og hvítu hárin á Perlu og eins Ásu verða skjanna hvít. Get alveg mælt með þessu.
Ætlum að halda pínu veislu í tilefni dagsins og verður boðið upp á túnfisk ;)
Smá fréttir af okkur !!
Þá er Brandur búin að fara í seinni sprautuna og gekk að sjálfsögðu ótrúlega vel. Við fórum til hennar Möggu upp í Varmahlíð en það var nú eiginlega í leiðinni þar sem mannfólkið var að fara í sitt árlega tannlæknatékk.
Möggu leist náttúrulega ótrúlega vel á Brand þannig að við vorum bara mjög sátt þrátt fyrir að veðrið hafi nú ekki alveg verið okkur hliðhollt en það var frekar hvasst og komin pínu ófærð á vegina.
Ása og Lukka fara svo til dýralæknis í byrjun janúar þar sem þær verða teknar úr sambandi. Perla er alveg ótrúlega spræk af þessu J/d fóðri frá Hills og ber ekki á neinu helti hjá henni en um þetta leyti í fyrra komst hún varla hjálparlaust upp eða niður stigann. Þannig að þetta er að virka á gömluna okkar! Vonum svo bara það besta en þetta er greinilega gigt sem er að hrjá hana.
Jæja smá fréttir af aðlöguninni !!!
Þá er þessi fyrsta vika liðin frá því Brandur kom á heimilið og nú er bara svona eins og hann hafi alla tíð búið hér hjá okkur.
Nói er nú bara einstakur.... var bara eins og hann segði velkomin í hópinn litli minn. og verið honum svakalega góður... svo hlýr og virðist skinja það að þetta er bara lítið barn.
Lukka hvæssti nú á hann fyrstu 3 dagana en svo var það búið.. Lukka hefur gengið honum í móðurstað og kallar voða furðulega á hann og þó hann sé steinsofandi annarsstaðar kemur hann á harðahlaupum til hennar. Man ekki eftir að hún hafi kallað svona á Ásu þegar hún kom. En Lukka kúrir með hann og þvær honum endalaust.... var farin að hafa áhyggjur að drengurinn yrði kannski skollóttur á öllum þessu þvotti því hún sleikir hann og þrífur í marga klukkutíma. En þar sem ég var nú viðstödd böðun áður en gaurinn kom norður veit ég að hann er ekki svona skítugur.. hehehe.
Perla er náttúrulega einstök " perla " því stundum fær Brandurinn að kúra hjá henni líka og það er bara sætast... hann fær samt ekki að þæfa og leyta að spena eins og Lukkan leyfir skinninu. Hann er hættur að vera hræddur við hana, var það fyrstu dagana enda ekki skrýtið hún er nú ekkert lítil greyið.
Ása getur leikið við hann endalaust og mér finnst eins og hún hafi eignast frábæran leikfélaga... og hún hvæsti aldrei á hann. Hún verður samt pirruð á honum þegar hann er að leyta að spena hjá henni. Eins ef Ása fær eitthvað gott að borða sem er nú stundum um helgar þá ýtir hún með loppunni í hausinn á honum til að halda honum frá.... hehehe hún er svo frábær karakter.
Brandur sjálfur er einstaklega kelin og sefur hjá okkur á nóttunni og best finnst honum að kúra hjá eiganda sínum og þá helst í handarkrikanum.... grrrr. og þá byrjar malið sem gæti alveg haldið fyrir mann vöku. Hann virðist vera mjög sáttur við þessa nýju fjölskyldu ;) bæði menn og dýr.