Núna er ég orðinn sex mánaða gamall og er orðinn ansi stór kisutrákur. Ég fer til dýralæknisins þann 19 febrúar og ég fer í geldingu hjá lækninum og mamma og amma kvíða smá fyrir því að ég fari í þessa aðgerð. Annars gengur vonandi allt vel.

5.2.2010 | 20:41

Ég á mér nýtt leikfangLaughing sem er þurrkarinn, mér finnst nefnilega ansi gaman að skoða hann og ég sofnaði inn í honum í dag. Mér finnst líka gott að fá mér ís og þeyttann rjóma en mamma bannar með það og ég fæ bara kisunammi í staðinn.

9.1.2010 | 18:50

Ég hef haft það gott um jólin og fengið gott að borða, ég hef fengið Murr blautmat hjá mömmu og hef ég víst fengið aðeins að smakka jóla mannamat t.d. eins hangikjöt sem mér finnst mjög gott og svo stalst ég í hamborgarahrygg mömmu minnar þegar hún skildi diskinn sinn eftir á eldhúsborðinu í 2 mínutur og þegar hún kom til baka þá var ég kominn upp á eldhúsborðið og var að gæða mér á hamborgarahrygg mömmu minnar á aðfangadegiWink

30.12.2009 | 19:07

Depill Hnoðri er kominn í 2 kíló, og hann stækkar og stækkarSmile en honum finnst auðvitað ansi gott að borða. Depill Hnoðri er mjög skemmtilegur kisustrákur og er algjör prakkari.

25.11.2009 | 14:05

Það hefur gengið allt vel hjá okkur síðan ég kom á nýja heimilið mitt. Ég er algjör prakkari og nautnarseggur og ég sef í rúminu hennar Sirrýjar mömmuTongue out. Mér finnst líka gott að borða skinku, kjúkling, súkkulaði og allan mannamat en ég fæ hann nú ekki oft, stundum smá að smakka um helgar.

Mamma (Sirrý) sér ekki sólina fyrir mig og finnst ég vera fallegasti kettlingur sem hún hefur séð, en auðvitað er hún ekki hlutlaus í að finnast það.

 

kveðja Depill Hnoðri og mamma

7.11.2009 | 18:50

Depill Hnoðri fór í sína fyrstu bólusetningu, ormahreinsun og var örmerktur í gær, hann var svaka duglegur og dýralæknirinn sagði að hann væri yndislegur heilbrigður lítinn kettlingurTongue out

23.10.2009 | 16:58

Jæja núna er Depill Hnoðri búinn að vera hjá okkur í viku og allt hefur gengið eins og i sögu, nema að hann vil ekki sofa í sínu bæli og ég keypti handa honum nýtt í gær, en hann vildi ekki sjá það, hann vil bara sofa í rúminu mínu. Hann er algjör nautnaseggur og kelirófa og vil bara láta dekra sig og hann er ansi latur stundum og vil bara liggja upp í rúmi hjá mér, annars er hann líka duglegur að leika sér eftir tíu á kvöldin.

20.10.2009 | 20:08



febrúar '10 | janúar '10 | desember '09 | nóvember '09 | október '09