Páfagaukaráðgjöf

Tímapantanir og upplýsingar í síma: 898-2808

       
Einkaráðgjöfin hentar þeim sem:
eiga páfagauk og langar að fræðast meira um hann,
finna til þess að þeir eru að missa tökin á páfagauknum sínum og hegðun hans,
vilja eiga í betra sambandi við páfagaukinn sinn,
vilja auka lífsgæði páfagauksins síns,
eru hræddir við páfagaukinn sinn sökum reynsluleysis eða vegna slæmrar reynslu á borð við slæmt  bit o.s.frv.
eru að takast á við kynþroska fugl eða að undirbúa sig fyrir kynþroska hans*
telja sig þurfa að láta fugl frá sér af einhverjum ástæðum,
eiga "einnar manneskju" fugl og vilja venja hann við fleira fólk,
*ýmsar hegðunarbreytingar geta átt sér stað þegar fuglar verða kynþroska og er agi gífurlega mikilvægur liður til að halda t.d. árasargirni í lágmarki.

Hlutir sem ég vinn með:
að fræða eigandann um tegund fuglsins, skapgerð, þroskaferli og mismunandi þarfir hans en það
gerir hann betur í stakk búinn til að takast á við þær breytingar sem geta orðið á sambandi fugls og
eiganda,
hegðunar"vandamál"; bit, öskur, árasargirni, leiði o.s.frv.
samband einnar manneskju fugls við eiganda og annað heimilisfólk,
að styrkja tengsl milli páfagauks og heimilisfólks og að bæta líkamsástand fugls og líðan hans


Það getur verið auðveldara fyrir þig að fá hjálp við að vinna með fuglinn þinn heldur en að finna fyrir hann nýtt heimili.


Þekking mín og reynsla:
Ég heiti Díana Lind Monzon og hef um langt skeið verið áhugamanneskja um málefni þau er tengjast páfagaukum. Síðan 2003 hef ég skrifað ýmsar greinar um páfagauka, uppeldi þeirra og þarfir ásamt því að sitja fyrir svörum páfagaukaeigenda. Nýverið lauk ég Certified Avian Specialist gráðu frá Samtökum gæludýraiðnaðarins í Bandaríkjunum. Í apríl sl. fór ég til Flórída og fylgdist með Dr. Vanessu Rolfe, DVM að störfum en hún starfar við The Bird & Exotic Hospital. Ég hef einnig heimsótt kakadúaathvarfið Mollywood í Washingtonfylki, BNA en það var mjög fróðleg heimsókn. Ég er svæðisráðgjafi á Íslandi fyrir the Amazona Society og hef verið boðið að gerast þýðandi fyrir World Parrot Trust. Ég er vel lesin, hef verið áskrifandi að fuglatímaritinu Bird Talk um árabil og hef komið mér upp góðu safni bóka um páfagauka. Ég hef því góðan aðgang að uppflettiritum ásamt því að vera í sambandi við þekkingarmikla aðila erlendis.

Kær kveðja,
Díana Lind Monzon, CAS (Certified Avian Specialist)
Páfagaukaráðgjafi 

www.oratrix.tk

Snyrting

Lilja Guðmundsdóttir og bý í Þórunnarstræti 119 600 Akureyri
Símar hjá mér eru 892-4005 og 462-4005
Ég snyrti bæði hunda og ketti. Ég lærði í Skotlandi og er búin að starfa við þetta frá 2001.

 

 
 
Skrá inn





Hafir þú ekki skráð þig áður smelltu þá hérna.
Umræða á Netinu
Auglýstu frítt hér!
 

http://dyraland.is | Notkunarskilmálar | API

© 2000-2010 dyraland.is
Öll réttindi áskilin. Um fyrirtækið | S1

http://dyraland.is

© 2000-2010 dyraland.is
Öll réttindi áskilin. | S1