Til þess að skrá nýja auglýsingu/umræðu, svara auglýsingu/umræðu, taka þátt í könnun eða að fá prentvæna útgáfu af auglýsingu/umræðu, þá
þarftu að vera skráð(ur).
Líalitlalipurtá
| 6. febrúar '10, kl: 22:07:24
| Alls sótt: 894
Naggrísinn okkar er dáinn ;(
Við gáfum strákunum okkar lítinn sætann naggrís í jólagjöf hann var æðislegur í alla staði og rosalega sætur og góður.
Í dag fundum við hann dáinn í búrinu sínu :( ekki nema 5 mánaða gamall litli gaurinn. ég hef verið rosa dugleg að gefa honum á hverjum degi að borða og drekka og þríf búrið reglulega. ég skil ekkert hvað hefur komið fyrir :(
Er eðlilegt að naggrísir hrökkvi bara sísvona upp? hélt að þeir væru nú með langt um lengri líftíma en hamstrar og vorum við með hamstur áður sem lést úr liggur við hárri elli en sá hamstur var að sliga í 3ja árið þegar hann dó.
Æji ég veit ekki er bara svo sár yfir þessu mér var farið að þykja svo vænt um litla syngjandi loðboltann.
ihj | það er leiðilegt með naggrísinn þin. þeir eru soldið viðkvæm dýr eru gjarnir á ...
ihj
| 20. febrúar '10, kl: 20:58:32
SV: Naggrísinn okkar er dáinn ;(
það er leiðilegt með naggrísinn þin. þeir eru soldið viðkvæm dýr eru gjarnir á að kviðslitna (við til dæmis að vera teknir upp rangt), nýranbilanir mjög algeingar og stiplast of ef þeir fá rangt granmeti sem getur valdið andlati. þetta eru æðisleg dýr en mjög viðkvæmir. dýralæknar segja oft ef naggrís verður veikur deyr hann. mjög saldgæft að þeir nái sér. svo já það að naggrís hrökkvi uppaf er algeingt.
vonandi finnið þið einhvern til að filla búrið hanns ;)
maxpepsi | En leiðinlegt að heyra þetta. Það er svo sárt að missa svona litlar dúllur.
Vi...
maxpepsi
| 22. febrúar '10, kl: 15:29:14
SV: SV: Naggrísinn okkar er dáinn ;(
En leiðinlegt að heyra þetta. Það er svo sárt að missa svona litlar dúllur.
Við vorum aftur á móti svo heppin að naggrísakellingin okkar, hún Pepsi, eignaðist 5 heilbrigða unga fyrir um mánuði síðan. Ef þið viljið skoða það að fá ykkur naggrís aftur þá endilega hafiði samband í síma 555-2777.